Þetta kemur fram í færslu sem Íslenska Hamborgarafabrikkan birti á Facebook-síðu sinni. „Kæru viðskiptavinir. Hamborgarafabrikkurnar á Höfðatorgi og í Kringlunni eru lokaðar vegna sóttkvíar starfsfólks. Við opnum aftur um leið og við getum,“ segir í færslunni.
Þá sendir veitingastaðurinn að lokum skilaboð til landsmanna. „Sýnum ábyrgð og gerum þetta saman.“