Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að í nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra um smitvarnir sé ekkert ákvæði um þá sem hafa jafnað sig á COVID-19 veikindum er fá samt sem áður enn jákvæða niðurstöðu í PCR-prófi. Þetta getur haft í för með sér að fólk sem smitast erlendis og tekur út 10 til 14 daga einangrun þar gæti þurft að bíða í tvo mánuði áður en því er hleypt í áætlunarflug.
„Erfðaefni veirunnar getur fundist í öndunarveginum í einhverjar vikur eftir að viðkomandi hefur náð bata án þess að viðkomandi sé smitandi, því PCR-prófið er svo næmt. Þetta var mál málanna sumarið 2020 þegar landamærin voru opnuð, fyrir tíma bólusetninga. Þá voru einstaklingar sem voru búnir að fá Covid-19 að reynast með jákvætt PCR-próf þegar þeir komu til landsins. Þá vorum við í því að meta hvort þetta væri virk sýking eða eldri sýking og við gerðum það meðal annars með því að mæla mótefni,“ er haft eftir Runólfi Pálssyni, yfirmanni COVID-göngudeildarinnar. Mótefnamælingin fer fram með blóðprufu.
„Það er hægt að meta þetta með ákveðnum leiðum í PCR-prófi. Ef það er lagt mat á veirumagnið en þetta er mjög snúið mál og þessir aðilar eru í vonlausri aðstöðu til að meta það hvort þetta er einstaklingur sem er smitandi, eða hvort þetta er einstaklingur sem er búinn að fá Covid-19 og er ekki lengur smitandi en ber samt erfðaefni veirunnar í öndunarvegi,“ er einnig haft eftir Runólfi sem benti á að fólki sé hleypt inn í samfélagið eftir að það lýkur einangrun en því geti verið meinað að fara í flug hingað til lands.
Hann sagði hér á landi hafi verið lagt mat á þetta með töku blóðsýna og mælingu á mótefnum í þeim. Hann sagði einnig að það sé spurning hvernig sóttvarnayfirvöld vilji hliðra til fyrir fólki svo það komist heim ef það er í þessari stöðu. „Það eru margar erfiðar hliðar á þessu,“ sagði hann.