Kristján Berg Ásgeirsson, sem gjarnan er þekktur sem fiskikóngurinn, skrapp nýverið til útlanda með fjölskyldunni og naut þar lífsins í sólinni. Eftir að hann kom heim frá útlöndum mætti hann beint í vinnuna og fór að birta myndbönd af því á samfélagsmiðlum sínum. Einhverjar sögusagnir voru því á kreiki um að Kristján hafi ekki virt skyldubundna sóttkví.
DV heyrði í Kristjáni vegna málsins en sögusagnirnar voru kveðnar niður á örstundu. „Ég er með mótefni, ég var einn af fyrstu 100 sem fékk Covid-19 hér á landi,“ segir Kristján í samtali við DV en þeir sem eru með mótefni þurfa ekki að fara í sóttkví við komu til landsins. „Það var mjög gott að komast aðeins í sólina og njóta lífsins.“
Kristján segir að það sé kostur að vera með mótefnið. „Jújú, það er bara fínt að vera með það,“ segir fiskikóngurinn en hann slapp ágætlega frá veirunni skæðu. „Þetta var flensa, pest sinnum tveir eða þrír sem ég fékk.“
Bæði Kristján og eiginkona hans eru með mótefni eftir að hafa greinst með veiruna en hann er þó eini sem fór beint að vinna.„Annars eru allir bara heima, konan og krakkarnir eru bara heima. Konan er með mótefni líka en hún er heima með krakkana, því þeir voru ekki búnir að fara í mælingu,“ segir Kristján sem kippir sér lítið upp við sögusagnirnar.
„Svona kjaftasögur eru alltaf skemmtilegar. Það er bara svoleiðis.“