Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að í nýrri samantekt Barnaverndarstofu komi fram að á fyrstu þremur mánuðum ársins hafi tilkynningarnar verið álíka margar og á fyrstu sex mánuðum síðustu ára.
„Þetta skýrist að hluta af þeim fjölda mála sem komið hafa upp er varða stafrænt kynferðisofbeldi,“ er haft eftir Heiðu Björg Pálmadóttur, forstjóra Barnaverndarstofu. Hún sagði að gerendur í málum af þessu tagi séu oft stórtækir og fórnarlömbin í einu lögreglumáli geti verið 10-15 talsins.
„Þessum málum byrjaði að fjölga seint á síðasta ári. Þetta er kannski í takt við þá stöðu í samfélaginu sem Covid bjó til og okkur grunaði að gæti komið upp. Þá voru allir meira heima hjá sér og gerendur reyndu að setja sig í samband við börn í gegnum netið. Þessar tölur staðfesta þær grunsemdir,“ sagði Heiða einnig.
Þessi mikli fjöldi mála hefur valdið auknu álagi á barnaverndarkerfið sem var veikt fyrir að sögn Heiðu. Hún sagði að á síðasta ári hafi met verið sett í fjölda skýrslutaka í Barnahúsi og að árið í ár virðist ætla að slá það met. Á fyrstu þremur mánuðum ársins hafi skýrslutökunum fjölgað um 158% miðað við sama tímabil í fyrra.