fbpx
Þriðjudagur 22.apríl 2025
Fréttir

Mál Bláfugls vekur mikinn ugg – Staðan sögð grafalvarleg

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 26. febrúar 2021 13:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hefur stefnt Samtökum atvinnulífsins (SA) og Bláfugli fyrir Félagsdóm.

Fragtflugfélagið Bláfugl sagði upp ellefu flugmönnum í desember í hagræðingarskyni. Í kjölfarið greindi ASÍ frá því að Bláfugl nýtti sér þjónustu starfsmannaleigna og var því haldið fram að Bláfugl gerði slíkt til að komast upp með lægri launagreiðslur.

FÍA hefur nú höfðað mál fyrir Félagsdómi varðandi meintar ólögmætar uppsagnir flugmanna Bláfugls sem starfa á kjarasamningi við FÍA. Eins er málið til skoðunar hjá Vinnumálastofnun.

Í fréttatilkynningu segir FÍA að málið hafi vakið mikinn ugg víða og hafi danskir og norskir fjölmiðlar fjallað um málið.

FÍA segir stöðuna grafalvarleg.

„Enda gróflega vegið að lögum og reglum íslensks vinnumarkaðar af hálfu Bláfugls og SA, sem fer með samningsumboðið fyrir hönd Bláfugls,“ segir í tilkynningu.

FÍA segir niðurstöðu Félagsdóms koma til með að skapa mikilvægt fordæmi fyrir því hvort heimilt sé að segja upp launafólki sem starfi eftir kjarasamningi og ráða inn gerviverktaka í staðinn á meira en helmingi lægri launum. Eins hvort heimilt sé að ráða inn gerviverktaka til að ganga inn í störf þeirra sem eru í löglega boðuðu verkfalli.

Í tilkynningu segir enn fremur:

„Undir lok síðasta árs var öllum flugmönnum Bláfugls sem eru í stéttarfélagi sagt upp störfum, í miðjum kjaraviðræðum, og í framhaldi af því tilkynnti flugfélagið um að framvegis muni það einungis ráða „sjálfstætt starfandi flugmenn,“ með öðrum orðum gerviverktaka. Flugmaður sem starfar fyrir flugrekanda getur í eðli sínu ekki starfað sem verktaki þar sem hann uppfyllir ekki skilyrði um verktöku.“

Telur FÍA að ef athæfi Bláfugls verði látið óátalið af yfirvöldum megi draga þá ályktun að heimilt sé að segja upp launafólki landsins sem starfi á grundvelli kjarasamninga og ráða inn gerviverktaka í þeirra stað til að lækka laun verulega og svipta launafólk áunnum réttindum á borð við veikindarétt og orlof.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Fær ekki að reisa litla virkjun á eigin jörð – Starfsmenn Skipulagsstofnunar og annars sveitarfélags sögðu ekki hafa verið rétt staðið að synjuninni

Fær ekki að reisa litla virkjun á eigin jörð – Starfsmenn Skipulagsstofnunar og annars sveitarfélags sögðu ekki hafa verið rétt staðið að synjuninni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Frans páfi farinn á vit feðra sinna

Frans páfi farinn á vit feðra sinna
Fréttir
Í gær

Kennari á Akureyri segir grein Grafarvogsbúa um blauta drauma borgarstjórnar afhjúpandi – „Grafarvogsgremjan er þá eftir allt saman stéttahroki“

Kennari á Akureyri segir grein Grafarvogsbúa um blauta drauma borgarstjórnar afhjúpandi – „Grafarvogsgremjan er þá eftir allt saman stéttahroki“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kærastinn að sökkva ofan í hyldýpi hægri samsæriskenninga – Spyr hvað sé til ráða?

Kærastinn að sökkva ofan í hyldýpi hægri samsæriskenninga – Spyr hvað sé til ráða?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Strútur réðst á Boris Johnson – „Of fyndið til þess að deila ekki“

Strútur réðst á Boris Johnson – „Of fyndið til þess að deila ekki“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þórður segir mjög mikilvægt að íslenska þjóðin sigri áróðursstríð útgerðarinnar – „Nú þarf að anda í kviðinn“

Þórður segir mjög mikilvægt að íslenska þjóðin sigri áróðursstríð útgerðarinnar – „Nú þarf að anda í kviðinn“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Kristján Loftsson harðorður – „Alþingi ræður engu í dag hér“

Kristján Loftsson harðorður – „Alþingi ræður engu í dag hér“