fbpx
Fimmtudagur 14.nóvember 2024
Fréttir

Kári segir þá hafa migið í skóinn – „Er það siðferðislegur réttur þeirra að fá að ganga um hland-blautir í báða fætur?“

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 26. febrúar 2021 17:00

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ritdeilur Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, og hóps íslenskra heimspekinga halda áfram. Ritdeilurnar hófust með pistli 5 heimspekinga sem fjallaði um spurningar varðandi mögulega rannsókn Pfizer hér á landi. Síðan þá hefur Kári svarað þeim pistli og fengið svo önnur svör í kjölfarið.

Lesa meira: Kári segir þá ekki hafa hundsvit á vandanum – „Það er dagljóst“

Lesa meira: Úlfur Atli svarar Kára Stefánssyni – „Eflaust voru einhverjir á bakvið tjöldin“

Nú birtir Kári nýjan pistil en sá birtist á Vísi í dag með yfirskriftinni „Þeir einir míga tvisvar í sama skóinn, sem þykir gott að vera blautir í fæturna“. Í pistlinum svarar Kári seinni pistli heimspekinganna 5.

„Ég svaraði heimsspekingunum með grein sem ég sendi inn þann 22. febrúar. Sama dag sendu heimsspekingarnir fimm, aðra grein sína til Fréttablaðsins, um bóluefnatilraunina sem aldrei varð, með frekari útlistingum á fordæmingu sinni á eigin hugmyndum um hana og útfærslu hennar. Fréttablaðið bauð þeim að lesa mína grein áður en hún birtist og svara röksemdum mínum, en þeir höfnuðu því og birtu í stað þess fordæmingu númer tvö á eigin hugarburði,“ segir Kári í upphafi þessa nýja pistils.

„Það er nefnilega töluvert frelsi sem felst í því að vita ekki hverjar hugmyndir manna eru áður en þú fordæmir þær. Síðan er það með ólíkindum hvernig heimsspekingarnir nýta sér þetta frelsi til þess að rjúka út í sömu mýrina aftur og aftur.“

Kári svarar nokkrum setningum heimspekinganna í þessum pistli en hér fyrir neðan má sjá svör Kára við setningunum:

1. „Allar ígrundaðar ákvarðanir okkar byggja bæði á skoðunum okkar um staðreyndir og á gildum okkar og markmiðum.“ Það er ljóst að sú ákvörðun heimsspekinganna að fordæma hugmyndina að bóluefnatilraun á Íslandi var byggð á skoðun þeirra á eigin hugarburði og engu öðru. Það má að vísu halda því fram með réttu, að hugarburður þeirra sé staðreynd og þeir hafi fullan rétt á því að hafa skoðun á honum , en það er með öllu óásættanlegt að ætla hugarburðinn öðrum en sjálfum sér. Fréttablaðið bauð þeim að takast á við raunveruleikann en þeir höfnuðu því. Kannski raunveruleikinn og heimsspekin þeirra blandist illa saman.

2.„Er til dæmis forsvaranlegt að ein þjóð stígi út úr samkomulagi við aðrar þjóðir um að tryggja sanngjarna dreifingu bóluefna, jafnvel þótt væntingar standi til þess að það skili vísindalegum niðurstöðum?“Ísland er aðili að samningum Evrópusambandsins um kaup á bóluefnum frá hinum ýmsu framleiðendum og er sá samningur ein helsta hindrunin í vegi fyrir sanngjarnri dreifingu bóluefna um heiminn. Með aðild að þessum samningum Evrópusambandsins brýtur Ísland COVAX samninginn um réttláta dreifingu bóluefna. Samningar Evrópusambandsins, og svipaðir samningar Bretlands og Bandaríkjanna eru ábyrgir fyrir því að fátæk lönd heimsins fá lítið sem ekkert fyrr en að ári. Síðan er það hitt að ef hugmyndinni um bólusetningartilraun á Íslandi hefði verið hrint í framkvæmd hefði það ekki brotið í bága við samkomulagið við Evrópusambandið um kaup á bóluefni. Tilraunin hefði ekki falið í sér kaup á bóluefni heldur tilraun með bóluefni sem Pfizer hefði lagt að mörkum til þess að auka skilning á því hvernig það virkar. Það var mat Pfizers á sínum tíma að það vantaði töluvert upp á þann skilning og að því marki að það gæti staðið í vegi fyrir að það nýttist sem best. Sú staðreynd að heimsspekingarnir efast um réttmæti þeirrar skoðunar Pfizers er í besta falli hlægileg.

3.„Í því samhengi má rifja upp að ekki er liðið ár frá því að forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar sakaði Persónuvernd um glæpsamlegt athæfi þegar stofnunin afgreiddi umsókn fyrirtækisins ekki samdægurs. Augljóst er að afdrifarík siðferðisleg álitamál er ekki hægt að ræða nægilega vel innan slíks tímaramma.“ Það geysaði faraldur smitsjúkdóms sem harla lítið var vitað um og saga hans til þess tíma leit út eins og fyrsti kapítulinn í sögunni um útrýmingu mannkyns. Það lá mikið á að afla frekari upplýsinga, ekki fyrir Íslenska erfðagreiningu (ÍE) heldur sóttvarnaryfirvöld, en það kom í hlut ÍE að afla þeirra vegna þess að það voru ekki aðrir í landinu með getu til þess. Vísindasiðanefnd sem er sá aðili í stjórnsýslunni, sem fjallar um siðferðileg álitamál, kallaði saman fund og afgreiddi umsóknina samdægurs en Persónuvernd ákvað að fresta afgreiðslu fram yfir helgi. Það var að öllum líkindum ekki til þess að ræða siðferðisleg álitamál heldur til þess að setja menn á sinn stað, sem er ekki alltaf af hinu vonda en bagalegt í farsótt, sem krefst þess að menn hreyfi sig hratt til þess að hefta útbreiðslu hennar.

4.„Hefði Ísland átt að leita til Alþjóðaheilbrigðismála-stofnunarinnar (WHO) til þess að leggja blessun sína yfir rannsóknina, til dæmis í ljósi afleiðinga fyrir bóluefnadreifingu til annarra þjóða“ Það er engin hefð fyrir því að WHO tjái sig um gagnsemi klínískra rannsókna með lyf enda hefur hún ekki yfir að ráða getu til þess. Það er verkefni Evrópsku lyfjastofnunarinnar og systurstofnana hennar um allan heim. Það hefði hins vegar verið við hæfi að leita álits WHO á kaupsamingum Evrópusambandsins við bóluefnaframleiðendur, af því að þeir hamla öðru frekar réttlátri dreifingu bóluefna um heiminn.

„Er það siðferðislegur réttur þeirra að fá að ganga um hland-blautir í báða fætur?“

„Það er ekki heiglum hent að sanna hvað vakir fyrir mönnum með gerðum þeirra og enn erfiðara að sanna hvað vakti fyrir mönnum þegar þeir ætluðu að gera það sem þeir gerðu ekki,“ segir Kári undir lok pistilsins.

Hann biður svo lesendur að huga að því að Pfizer og samstarfsaðilar þeirra hafi búið til bóluefni sem virkaði vel og var samþykkt á markað. „Vísindamenn Pfizers voru engu að síður áhyggjufullir vegna þess að þeim fannst eins og vantaði töluvert upp á að þeir vissu það sem vita þyrfti til þess að þeir væru öruggir um að ekki væri þörf á því að bæta bóluefnið eða bæta við öðru bóluefni til þess að hemja skepnuna,“ segir Kári.

„Þeim leist vel á að gera tilraun á Íslandi til þess að sækja þá vitneskju sem á vantaði, en þegar kom að því að hanna tilraunina þótti vísindamönnum Pfizers og íslenskum kollegum þeirra hún ekki líkleg til árangurs, vegna þess að pestin hefði verið kveðin í kútinn á Íslandi með sóttvörnum.“

Að lokum kemur Kári með spurningu til lesenda. „Finnst ykkur eins og okkur beri skylda til þess að troða heimsspekingunum í þurra sokka eða er það siðferðislegur réttur þeirra að fá að ganga um hland-blautir í báða fætur?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Svona ætlar Inga Sæland að fjármagna kosningaloforðin

Svona ætlar Inga Sæland að fjármagna kosningaloforðin
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Ráðgjafi Trump segir að Zelenskyy verði að sætta sig við að Krímskagi sé tapaður

Ráðgjafi Trump segir að Zelenskyy verði að sætta sig við að Krímskagi sé tapaður
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Eftirlýstur frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins dregur sig í hlé

Eftirlýstur frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins dregur sig í hlé
Fréttir
Í gær

Leigusali í Grindavík ofrukkaði leigjandann eftir hamfarirnar

Leigusali í Grindavík ofrukkaði leigjandann eftir hamfarirnar
Fréttir
Í gær

Hart sótt að Þórði Snæ eftir afsökunarbeiðnina – Ingibjörg á Heimildinni segir hann skorta auðmýkt

Hart sótt að Þórði Snæ eftir afsökunarbeiðnina – Ingibjörg á Heimildinni segir hann skorta auðmýkt
Fréttir
Í gær

Þórður Snær biðst afsökunar – Snærós: „Kommon. Þú varst fullorðinn maður“

Þórður Snær biðst afsökunar – Snærós: „Kommon. Þú varst fullorðinn maður“
Fréttir
Í gær

Sá sjálfur um lagnirnar og er sakaður um dómgreindarleysi, hroðvirkni og vanrækslu – Þarf að greiða kaupandanum tæpar 15 milljónir

Sá sjálfur um lagnirnar og er sakaður um dómgreindarleysi, hroðvirkni og vanrækslu – Þarf að greiða kaupandanum tæpar 15 milljónir
Fréttir
Í gær

Fangi lést á Litla Hrauni í dag

Fangi lést á Litla Hrauni í dag