Kristleifur Kristleifsson var í morgun dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir ofbeldi gegn samfanga á Litla Hrauni vorið 2019. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands.
Ákæran var í tveimur liðum þar sem annar varðar líkamlegt ofbeldi en hinn hótanir. Ákæran eins og hún birtist í texta dómsins er eftirfarandi:
„I. fyrir líkamsárás með því að hafa, síðdegis fimmtudaginn 16. maí 2019, í eldhúsi í sameign í fangelsinu að Litla Hrauni á Eyrarbakka, veist að A, ógnað honum endurtekið með hnífi og því næst kýlt hann ítrekað í andlit með þeim afleiðingum að A hlaut ótilfært nefbrot, mar vinstra megin á andliti, bólgu í kringum vinstra auga, sprungna neðri vör, blóðnasir, sár á enni, glóðarauga beggja vegna og eymsli víða í andliti, höfði og augum.
Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940.
II fyrir hótanirmeð því að hafa, síðdegis föstudaginn 13. september 2019, í fangelsinu að Litla Hrauni á Eyrarbakka, hringt í B, og hótað honum ofbeldi ef hann hætti ekki öllum samskiptum við C. Nánar tiltekið fólust hótanirnar í því að slys myndi verða og að ákærði þekkti aðila sem væru reiðubúnir til þess að brjóta andlit fyrir hann. Þá kvaðst ákærði vita hvar B og nánustu aðstandendur hans byggju, en framangreind ummæli voru til þess fallin að vekja hjá B ótta um eigið líf, heilbrigði og velferð hans og fjölskyldu hans.
Telst brot ákærða varða við 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Gerð var miskabótakrafa fyrir hönd mannsins sem varð fyrir árás Kristleifs, upp á eina og hálfa milljón króna. Niðurstaðan var að hann þarf að greiða manninum hálfa milljón með dráttarvöxtum.
Kristleifur viðurkenndi sök í málinu. Hann viðurkenndi einnig bótaskyldu en mótmælti bótafjárhæðinni sem krafist var. Hann hefur margoft áður gerst brotlegur við lög og hefur samtals 14 sinnum verið fundinn sekur um refsivert athæfi, þar af átta sinnum fyrir ofbeldisbrot. Árið 2017 var hann meðal annars fundinn sekur um líkamsárásir í Vestmannaeyjum og fyrir að hafa stolið 75 lundum sem voru í reykingu í reykskúr.