Fyrir hálfum mánuði var Flemming Mogensen dæmdur í lífstíðarfangelsi af dómstól í Árósum í Danmörku fyrir morðið á Freyju Egilsdóttur. Hann kyrkti hana þann 29. janúar síðastliðinn og hlutaði lík hennar síðan í sundur. Hann tók sér umhugsunartíma um hvort hann myndi áfrýja dómnum þegar hann var kveðinn upp.
Í dag var tilkynnt að Flemming uni dómnum. Mads Krarup, verjandi hans, sagði þetta.
Flemming hafði áður hlotið dóm fyrir morð en hann myrti barnsmóður sína fyrir 25 árum með hrottalegum hætti. Þá afplánaði hann 10 ára dóm.
Hann mun því eyða því sem hann á eftir ólifað bak við lás og slá.