Það var stálheppin kona á sjötugsaldri sem hafði heppnina með sér á jóladag þegar hún vann hæsta þrefalda pott lottó hingað til eða rúmlega 41,1 milljón.
Samkvæmt tilkynningu frá Getspá býr konan á höfuðborgarsvæðinu og lét athuga miðann sinn á sölustað í gær og var þá vísað niður í höfuðstöðvar Íslenskrar getspár þar sem góðu fréttirnar biðu hennar. Tilkynningin ber fyrirsögnina „Þrír synir, þrjár raðir og þrefaldur pottur“ og er hún útskýrð með eftirfarandi hætti:
„Segja má að vinningurinn hafi verið heppileg aukaverkun af jólastressinu því eins og sú heppna lýsir því var hún skyndilega stödd fyrir framan N1 við Bíldshöfða án þess að muna hvaða erindi hún átti þangað. Hún ákvað því að skella sér bara inn og kaupa lottómiða. Hún brá ekki af vananum og keypti þrjár raðir í sjálfvali þar sem hún á þrjá syni.“
Vinningshafinn segir vinninginn kærkominn og ætlar að greiða eftirstöðvar af húsnæðisláni sínu.
„En mest hlakkar hún til að fagna með sonum sínum enda séu þeir allir hjá henni núna um hátíðirnar þótt þeir séu uppkomnir og búsettir erlendis.“