fbpx
Mánudagur 03.febrúar 2025
Fréttir

Nágranni frá helvíti hrelldi fjölskyldu í Reykjavík – Myndir af föðurnum létu þau óttast um líf sitt – „Þarft að passa þig hverjum þú ert að fokka í“

Jón Þór Stefánsson
Miðvikudaginn 29. desember 2021 19:30

Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem staðfest var nálgunarbann gagn manni sem hefur verið kærður fyrir umsáturseinelti gagnvart fyrrverandi nágrönnum sínum. Um er að ræða  fjögurra manna fjölskyldu sem telur foreldra og tvær dætur. Maðurinn þarf nú að halda sig 50 metrum frá fjölskyldunni, og má þar að auki ekki veita börnunum eftirför, nálgast þau á almannafæri, eða setja sig í samband við með öðrum hætti.

Af úrskurðinum sést að nágranninn hafi áreitt fjölskylduna um árabil með ýmsum hætti. Greindi fjölskyldan frá því að maðurinn hafi prentað út myndir af fjölskylduföðurnum og hengt þær upp á almannafæri þar sem hann taldi öruggt að dæturnar yrðu varar við þær, eða víðs vegar um leiðina sem þær ganga á leið í skóla. Það virðist hafa kornið sem fyllti mælinn í erjunum við þennan erfiða nágranna, og því hafa foreldrarnir kært hann fyrir umsáturseinelti.

Nágrannaerjurnar áttu sér þó forsögu, en málið á að hafa byrjað árið 2019. Nágranninn bjó hjá foreldrum sínum fyrir neðan fjölskylduna og þurfti fjölskyldan í þrígang að kalla til lögreglu vegna hans árið 2020.

„Þarft að passa þig hverjum þú ert að fokka í“

Fyrsta atvikið á að hafa byrjað vegna kannabisreykinga mannsins, en reykur og lykt á að hafa farið inn í íbúð fjölskyldunnar, og þau hringt á lögreglu. Einn fjölskyldumeðlimurinn á þá að hafa bankað upp á hjá manninum, og hann komið til dyra og sýnt ógnandi tilburði. Lögreglan mætti síðan á vettvang og ræddi við manninn.

Annað atvikið byrjaði á svipaðan hátt, en aftur hringdi fjölskyldan á lögreglu vegna kannabisreykinga. Einn fjölskyldumeðlimurinn á þá að hafa hringt í manninn sem varð til þess að hann kom stuttu seinna í heimsókn og heimtaði að fjölskyldumeðlimurinn talaði við hann úti, og hann féllst á það.

Þegar út var komið á hann að hafa sagt: „Þú þarft að passa þig hverjum þú ert að fokka í, það er aldrei að vita hvað þær gætu gert“. Auk þess á hann að hafa talað um að hafa hrakið fyrrum eigendur íbúðar fjölskyldunnar í burtu, og sagt að ætlun sín væri að gera slíkt hið sama við fjölskylduna. Lögregla kom á vettvang og þá kvaðst maðurinn ætla að láta af umræddri háttsemi.

Segja hann hafa tekið myndir af þeim inn um gluggann

Næst var óskað eftir lögreglu þegar einn fjölskyldumeðlimurinn vildi meina að maðurinn léki sér að því að mæta sér á göngum hússins og axla sig. Auk þess á hann að hafa staðið fyrir utan heimili þeirra og tekið myndir af fjölskyldunni inn um glugga á heimili þeirra.

Síðan virðist vera sem fjölskyldan hafi ekki orðið vör við manninn í eitt og hálft ár, þar sem hann hefði flutt.

Í september á þessu ári segist fjölskyldan aftur hafa orðið mannsins vör. Dóttir úr fjölskyldunni hafi verið á leið úr skólanum og tekið eftir mynd af föður sínum á leiðinni. Á myndinni sást faðirinn með vínglas í hönd, og á hana hafði fíkniefnasími lögreglu verið skrifaður. Í kjölfarið tók annað foreldrið rúnt um göturnar í kring og fann umrædda mynd, og aðra eins á öðrum stað.

Óttuðust um líf sitt

Foreldrarnir telja að maðurinn hafi kortlagt ferðir dætra sinna, og komist sérstaklega að því hvað leið þær færu á leið í skólann. Myndirnar voru afhentar lögreglu

Tæplega viku síðar voru myndirnar aftur komnar upp, en í þetta skipti var vinnustaður föðurins tilgreindur. Fram kemur að þessar myndir hafa valdið fjölskyldunni mikilli vanlíðan. Foreldrarnir hafi óttast um líf og velferð þeirra og dætranna.

Þá er tekið fram að einstaklingur tengdur manninum á að hafa verið miður sín yfir meintri hegðun mannsins og hvatt fjölskylduna til að leita aðstoðar lögreglu.

Þá á fjölskyldan að hafa greint frá frekari óþægindum sem maðurinn á að hafa ollið þeim. Þar er minnst á dæmi þar sem hann á að hafa hrækt á bifreið fjölskyldunnar á meðan faðirinn sat í henni, og þá á hann að hafa ausið yfir þeim fúkyrðum er hann mætti þeim, líka þegar börnin voru með í för.

Líkt og áður segir staðfesti Landsréttur nálgunarbannið yfir manninum í gær, en úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur var gefinn út viku áður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna hlessa á nýrri prentarastillingu leikskólanna – Eykur á samviskubitið

Sólveig Anna hlessa á nýrri prentarastillingu leikskólanna – Eykur á samviskubitið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Var íslenska dragdrottningin myrt? – „Það hefur ekkert áunnist í þessari lögreglurannsókn“

Var íslenska dragdrottningin myrt? – „Það hefur ekkert áunnist í þessari lögreglurannsókn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristján ómyrkur í máli á fundi með borgarstjóra – Krafan er skýr

Kristján ómyrkur í máli á fundi með borgarstjóra – Krafan er skýr
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sjáðu Þór bjarga Hugin – Myndband

Sjáðu Þór bjarga Hugin – Myndband