fbpx
Mánudagur 03.febrúar 2025
Fréttir

Árný vill að jólasveinar hætti að gefa börnum í skóinn – „Ástæðan er einföld“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 28. desember 2021 17:07

Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árný Elínborg virðist ekki vera ánægð með störf jólasveinanna 13 eftir jólin ef marka má pistil eftir hana sem birtist á Vísi. „Um miðjan desember heyrði ég á tal þriggja barna sem voru að tala um gjafir í skóinn. Þau voru að bera saman bækur sínar og kom þá í ljós verulegur munur á gjöfum. Eitt barnið fékk ekki gjöf, ekki einu sinni kartöflu, annað barnið fékk hóflega gjöf en það þriðja fékk gjöf sem er dýrari en flestar jólagjafir,“ segir Árný í upphafi pistilsins sem er eins konar opið bréf til jólasveinanna.

„Þegar ljóst var hvernig gjafir þau hefðu fengið sló smá þögn á þau sem fengu minna og sá sem ekkert fékk var bersýnilega svekktur. „Varstu óþekkur?“ spurði sú sem fékk þá hóflegri. „Ég veit það ekki,“ svaraði strákurinn. Síðan fór allt samtalið í að ræða risastóra gjöf þess þriðja í þaula.“

Finnst ósanngjarnt að börn efnaðra foreldra fái meira

Árný segir jólasveinunum að krakkarnir hafi ekki véfengt fyrirkomulag sveinanna og sér í lagi þá sjálfa. „Foreldrar þeirra hafa kennt þeim að setja ykkur á stall, um jólin sé fátt meira spennandi en þið. Börn eru líka að læra á samfélagið og taka því oft bara eins og það er. Þau treysta okkur sem fullorðin eru til þess að kenna þeim á heiminn. En líklegt er að þau taki þetta inn á sig og taki sök, eins og börn gera oft,“ segir hún.

„Þau sem ekkert fá eða fá minna en hin sitja líklegast eftir með skilaboð um að frammi fyrir ykkur þykji þau síðri en önnur börn. Ég held að í fæstum tilvikum setji þau ábyrgðina á ykkur, þau spyrji frekar – af hverju þau séu ekki eins góð og hin börnin? Þau hafi jafnvel lagt sig fram við að haga sér svo vel.“

Þegar Árný horfir á þetta sem fullorðinn einstaklingur tekur hún eftir því að það hvað börn fá frá jólasveinunum virðist ekki vera tilviljanakennt. „Þau börn sem eiga efnaða foreldra virðast oft fá miklu stærri gjafir en hin. Það finnst mér nokkuð ósanngjarnt, hvað segir efnahagur foreldra þeirra um hvort þau hafi hegðað sé vel í desember eða ekki?“

„Ástæðan er einföld“

Lengi vel hafa jólasveinar verið beðnir um að sjá til þess að börn fái hóflegar gjafir í skóinn en Árný segir að það virðist vera sem það sé ekki að virka. „Ástæðan er einföld, í heildina þá trúið þið ekki á jöfnuð og réttlæti. Það munu alltaf vera börn sem fá miklu meira frá ykkur en hin, og önnur sem fá miklu minna eða ekkert,“ segir hún.

„Af hverju ætti samsetning ykkar að vera eitthvað öðruvísi en samfélagsins okkar í heild. Það trúa ekki allir á Íslandi á jöfnuð og réttlæti. Sérstaklega á þessum tímum þar sem bilið hefur breikkað svo mikið á milli fólks.“

Biður jólasveina um að hætta að gefa í skóinn

Að lokum kemur Árný með tillögu til að koma í veg fyrir þetta misrétti. „Ég vil því leggja eitt til. Ég vil biðja ykkur að hætta bara alfarið að gefa börnum í skóinn. Það er hægt að halda í hefðina, en láta foreldrunum það bara eftir. Þið getið samt alveg ennþá komið til byggða og skellt hurðum, stolið skyri, sníkt kerti og svo framegis,“ segir hún.

„Við tökum ykkur líka fagnandi á jólaskemmtanir. En kannski séu gjafirnar í skóinn ykkur ofviða sem heild. Ég geri mér grein fyrir að um þetta verði samningaviðræður ykkar á milli, og milli ykkar og foreldra. En hugsið allavega málið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna hlessa á nýrri prentarastillingu leikskólanna – Eykur á samviskubitið

Sólveig Anna hlessa á nýrri prentarastillingu leikskólanna – Eykur á samviskubitið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Var íslenska dragdrottningin myrt? – „Það hefur ekkert áunnist í þessari lögreglurannsókn“

Var íslenska dragdrottningin myrt? – „Það hefur ekkert áunnist í þessari lögreglurannsókn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristján ómyrkur í máli á fundi með borgarstjóra – Krafan er skýr

Kristján ómyrkur í máli á fundi með borgarstjóra – Krafan er skýr
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sjáðu Þór bjarga Hugin – Myndband

Sjáðu Þór bjarga Hugin – Myndband