Pappi, plast og jólapappír eru stór hluti af ruslinu sem fellur til um jólin og fyllast heimilistunnur hratt á þessum árstíma. Í tilkynningu frá Orkunni kemur fram að til 29.desember verður hægt að skila pappa, plastumbúðum og jólapappír til endurvinnslu á fjórum stöðvum fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu.
„Við þekkjum öll hvernig stofan okkar lítur út eftir aðfangadagskvöld. Við viljum einfalda líf fólks og trúum á að þetta séu þægindi framtíðarinnar. Með þessum möguleika getur fólk hent pappa, plasti og jólapappír með góðri samvisku hvenær sem hentar, jafnvel á náttfötunum á jóladagsmorgun. Terra sér svo um að flokka og endurvinna það sem safnast.“ segir Jóhanna Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Orkunnar.
Um tilraunaverkefni er að ræða og möguleiki að fjölga staðsetningum fyrir næstu jól ef vel gengur í ár. „Við prófuðum þetta í sumar með garðaúrgang við góðar undirtektir og finnum fyrir mikilli ánægju meðal viðskiptavina okkar með þetta framtak. Garðaúrgangurinn er síðan jarðgerður og munum við bjóða moltu til viðskiptavina á næsta ári.“
Gámarnir eru staðsettir við stöðvar Orkunnar á Suðurströnd, Seltjarnarnesi, við Kleppsveg og á Gylfaflöt í Reykjavík og á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði og eru aðgengilegir allan sólarhringinn. Í gámana má fara pappi, plastumbúðir og jólapappír. „Við viljum samt vekja athygli á því að oft er hægt að nýta jólapappír, pakkabönd og slaufur aftur næstu jól og er það auðvitað besta endurvinnslan,“ segir Jóhanna að lokum.