Núverandi takmarkanir renna út 22. desember. 200 smit greindust í gær og er það næstmesti fjöldi smita sem greinst hefur á einum degi. Tólf sjúklingar liggja á Landspítalanum vegna COVID-19, einn þeirra er á gjörgæslu.
Að minnsta kosti 160 tilfelli Ómíkron hafa verið staðfest hér á landi og var meirihluti þeirra hjá fólki sem ekki var í sóttkví þegar það greindist.
Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans, telur líklegt að fljótlega muni útbreiðsla kórónuveirunnar líkjast því sem er í nágrannaríkjum okkar. Morgunblaðið hefur eftir honum að því megi hæglega búast við 600 smitum á dag á næstu misserum. „Okkur líst ekki vel á þetta. Öll reynsla í nágrannaríkjum er þannig að þetta mun bara vaxa núna í veldisvexti og við getum alveg gert ráð fyrir því að þetta verði eins og í Danmörku. Þá gætum við verið að sjá sirka 600 smit á dag. Ef svo fer, þá munum við vera með á tíu dögum sex þúsund smit og tólf þúsund smit á tuttugu dögum,“ sagði hann í samtali við mbl.is í gær.
Hann sagði að ef þessi spá gengur eftir sé eini kosturinn í stöðunni að allt samfélagið bregðist við. Hann sagði einnig að ef útbreiðslan muni líkja eftir því sem hefur gerst á hinum Norðurlöndunum megi búast við að 120 COVID-19-sjúklingar þurfi að liggja á sjúkrahúsi í einu miðað við að 1% sjúklinga þurfi að leggjast inn á sjúkrahús. „Þorri fólks mun ekki veikjast mikið og alvarlega en það er þetta sem út af stendur sem kemur til kasta heilbrigðisstofnana,“ sagði Már.
Hann sagði að nú sé mikilvægt að grípa í taumana og að tveir mikilvægir þættir séu í stöðunni til að halda aftur af útbreiðslu veirunnar. Annars vegar með sóttvarnaaðgerðum á borð við samkomutakmarkanir og hins vegar að hvetja fólk til að fara í örvunarbólusetningu og hefja bólusetningar barna á aldrinum fimm til ellefu ára. „Þeim mun meira ónæmi sem við höfum í samfélaginu, því erfiðara er fyrir veiruna að dreifast,“ sagði hann.