fbpx
Sunnudagur 02.febrúar 2025
Fréttir

Safna fyrir bræður sem jörðuðu föður sinn á föstudegi og misstu móður sína daginn eftir – Glötuðu öllu í eldsvoða fyrir tveimur árum

Björn Þorfinnsson
Mánudaginn 20. desember 2021 10:16

Bræðurnir hafa upplifað margskonar mótlæti á undanförnum árum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er mikið á þessa ungu drengi lagt. Það er stutt síðan að þeir misstu allt sitt í eldsvoða og núna skiptir máli að þeir hafi tök á því að verða sjálfstæðir einstaklingar,“ segir Harpa Hrönn Gestsdóttir, móðuramma bræðranna Elísar Arons, Gunnlaugs Arnar og Brynjars Pálma Árnasona.

Bræðurnir og fjölskyldur þeirra eru í sárum eftir að foreldar þeirra, Árni Helgi Gunnlaugsson og Jenný Bára Hörpudóttir, féllu frá með nokkurra vikna millibili. Árni Helgi lést þann 23. nóvember síðastliðinn, 57 ára að aldri,  eftir hálfs árs baráttu við illvígt krabbamein og var jarðsettur þann 3. desember síðastliðinn. Nóttina eftir jarðaförina varð Jenný Bára bráðkvödd, aðeins 39 ára gömul.

Bræðurnir þrír eru 15, 16 og 18 ára gamlir og hafa glímt við margskonar mótlæti undanfarin ár. Það vakti  þjóðarathygli þegar eldur kviknaði í íbúð feðganna í Jórufelli þann 28. september 2019 og flestar veraldlegar eigur þeirra brunnu til kaldra kola. Það var kraftaverk næst að bræðurnir hafi sloppið úr þeim hildarleik.

„Ég hélt þarna, að ég gæti mögulega verið að missa tvo af þremur strákunum mínum. Það er auðvitað erfitt að lýsa því, hvernig manni líður á svona stundu,“ skrifaði Árni Helgi heitinn í tilfinningaþrungnum pistli sem birtist á Vísi skömmu eftir eldsvoðann.

Um afar áhrifaríka lesningu var að ræða þar sem Árni Helgi lýsti þeirri örvæntingu sem hann upplifði þegar hann frétti af eldsvoðanum og hvernig hann kom á vettvang án þess að vita neitt um afdrif sona sinna. Hann náði ekki í þá í síma og óttaðist hið versta.

„Ég veit ekki hve langur tími leið. Tíminn verður svo afstæður í svona aðstæðum. Fyrir mér var þetta heil eilífð. En loksins sá ég drengina mína, á náttfötunum að ræða við lögreglumann. Það er auðvitað ekki heldur hægt að koma orðum að þeirri upplifun, svo vel sé. En hugtakið að „heimta úr helju“ fær alla vega dýpri og þrungnari merkingu. Á því augnabliki sem ég sá þá, missti ég eiginlega alveg áhugann á eldsvoðanum og því sem var að brenna, eða hafði brunnið. Fékk það beint í æð, hvað það er, sem skiptir máli í lífinu. Get ennþá upplifað þessa tilfinningu þegar ég hugsa um töfraaugnablikið,“ skrifaði Árni Helgi.

Skjáskot úr kvöldfréttum RÚV 29. september 2019 þar sem Árni Helgi lýsti hinum örlagaríka degi

Feðgarnir voru að vinna sig úr þessum erfiðleikum þegar Árni Helgi greindist með illvígt krabbamein um mitt ár sem hafði hann undir hálfu ári síðar. Fjölskylda og vinir bræðranna hafa nú blásið til söfnunnar sem móðursystir þeirra, Aníta Runólfsdóttir,  heldur utan um. Móðuramma þeirra, Harpa Hrönn, segir að framtíð þeirra sé óráðin en ástvinir þeirra muni styðja við bakið á þeim.

„Það er stutt síðan þeir misstu allt sitt í eldsvoða og nú skiptir máli að þeir hafi tök á að verða sjálfstæðir einstaklingar. Þá dreymir um að taka bílpróf, vilja mennta sig og eiga bjarta framtíð. Fjárhagsáhyggjur og að eiga enga foreldra til staðar gerir þeim erfiðara fyrir. Öll óvænt útgjöld getur reynst þeim erfið, því var styrktarreikningurinn gerður til að geta mætt þessum þörfum hjá drengjunum.“

Reikningsupplýsingar söfnunarinnar eru eftirfarandi: Reikn. 0370 13 008564 – Kt. 130893-2019.

 

 

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Inga Sæland þurfi að passa sig: „Derringur er sjaldnast af hinu góða“

Segir að Inga Sæland þurfi að passa sig: „Derringur er sjaldnast af hinu góða“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ætla ekki að gera úrbætur á hættulegu hringtorgi þar sem keyrt var á átta ára dreng

Ætla ekki að gera úrbætur á hættulegu hringtorgi þar sem keyrt var á átta ára dreng