Nýkrýndur heimsmeistari í skák í fimmta sinn, Norðmaðurinn Magnus Carlsen, hefur gefið í skyn að hann hyggist ekki verja heimsmeistaratitil sinn. Í norsku hlaðvarpi í vikunni lét hann þau orð falla að aðeins tiltekinn andstæðingur gæti veitt honum þann innblástur að tefla annað einvígi um heimsmeistaratitilinn.
„Ef einhver annar er Firouzja vinnur næsta áskorendamót [og tryggir sér þar með réttinn til að skora á Carlsen] þá er ólíklegt að ég tefli næsta heimsmeistaraeinvígi,“ sagði Carlsen í hlaðvarpinu sem var á vegum Unibet, eins aðalstyrktaraðila hans, en viðmælandi var góðvinur hans Magnus Barstad.
Þar á Norðmaðurinn við íranska undrabarnið Alireza Firouzja sem hefur farið með himinskautum á skákborðinu undanfarna mánuði og er er í dag orðinn næststigahæsti skákmaður heims á eftir Carlsen. Firouzja er aðeins 18 ára gamall og eru flestir á því að hann verði arftaki Carlsen sem heimsmeistari. Saga hans er áhugaverð en nýlega flúði hann Íran ásamt fjölskyldu sinni og teflir núna undir fána Frakklands.
Hér geta áhugamenn um norska tungu hlýtt á hlaðvarpið
Carlsen hefur áður minnst á það að hann hafi átt erfitt með að mótívera sig fyrir heimsmeistaraeinvígið gegn Ian Nepomniachtchi og að gleðin við að vinna sannfærandi sigur hafi ekki verið sú sem hann gerði ráð fyrir.
„Mér hefur verið það ljóst allt árið að þetta einvígi ætti að vera mitt síðasta. Þetta skiptir mig ekki jafnmiklu máli og áður. Ég upplifi ekki að jákvæðu hlutirnir við einvígið slái út þá neikvæðu,“ sagði Carlsen sem er þó aðeins 31 árs gamall.
Það er sumsé þessi tilfinning Magnúsar að hann hafi ekkert að sanna sem að slekkur neistann hjá honum. Tilhugsunin um að margir telji að íranska undrabarnið verði betri en hann kveikir þó eitthvað bál innra með honum. „Ég verð að viðurkenna að mér hefur þótt mikið til frammistöðu hans koma undanfarið og það hefur gefið mér hvatningu,“ segir Carlsen.
En skákáhugamenn þurfa ekki að óttast að Carlsen ætli að leggja taflmennina á hilluna alveg strax. „Ég mun halda áfram að tefla, það veitir mér mikla gleði,“ segir Carlsen. Framundan er heimsmeistaramótið í hrað- og atskák í Varsjá milli jóla- og nýárs og segir Carlsen að hann sé afar spenntur fyrir þeirri keppni. Þá hafi hann sett sér það háleita markmið að verða fyrsti maðurinn til að ná að rjúfa 2900 stiga múrinn í FIDE-skákstigum.
„Ég hef aldrei viljað setja mér það markmið því ég hef hreinlega talið það of erfitt. Núna er ég kominn upp í 2865 stig og því finnst mér það rökrétt að setja stefnuna á það. Það virðist ekki ómögulegt en ég þarf að vera í toppformi í hverri einustu skák til þess að eiga mögulega,“ segir Carlsen. (Rétt er að geta þess að þar sem Carlsen er stigahæsti skákmaður heims þá tapar hann stigum fyrir hvert jafntefli eða tap gegn öðrum skákmönnum.)