Undanfarna daga hefur umræða um raforkumál verið hávær í kjölfar ákvörðunar Landsvirkjunar að skerða raforku til stórnotenda, eins og fiskimjölsverksmiðja, álvera og gagnavera. Í aðsendri grein á Vísi fer Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, yfir málið. Í greininni kemur fram að vissulega sé tímabundin rafmagnsskortur hérlendis en sú staða leiði ekki til þess að byggja þurfi fleiri og stærri virkjanir. Staðan sé fyrst og fremst til komin vegna þess að það er skortur á vatni til að keyra núverandi virkjanir. Af því rafmagni sem framleitt er fer stóriðju en einungis 20% fer til annarra – þar með eru talin öll heimili í landinu, allur léttur iðnaður, fiskiðnaður og landbúnaður, og nú einnig og í vaxandi mæli, rafbílarnir okkar.
„Það hefur verið vitað frá því að fyrsta vatnsaflsvirkjunin var byggð að vatnsár eru misgóð og sum ár eru svo léleg að við getum ekki fullnýtt virkjanirnar okkar. Við þær aðstæður þarf að skerða afhendingu á rafmagni til kaupenda. Af þessari ástæðu eru heimildir til skerðingar á rafmagni í öllum rafmagnssölusamningum við stóriðju. Stóriðjan veit að hún getur ekki framleitt á fullum afköstum þegar lítið rennsli er til vatnsaflsvirkjana enda fær hún rafmagnið á lægra verði en ella vegna þessa. Við færum illa með fé og illa með land og náttúru ef við virkjuðum stórfellt til þess að stóriðjan þyrfti ekki að sæta skerðingu, sem hún hefur vel að merkja sjálf samið um af fúsum og frjálsum vilja við raforkuframleiðendur. Takmörkuð flutningsgeta rafmagns milli landshluta bætir ekki úr skák við þessar aðstæður. Höfum líka í huga að væri stóriðja ekki í landinu og raforkukerfið miðaðist við almennan markað einvörðungu þá væri nú hugsanlega verið að skerða afhendingu á rafmagni til heimila,“ skrifar Bjarni.
Að hans sögn eru hins vegar fiskimjölsverksmiðjur í annarri stöðu.
„Þær hafa samið ein af annarri um kaup á svo kölluðu ótryggu rafmagni eða afgangsrafmagni til þess að knýja ofna sína í stað þess að brenna olíu og það er til fyrirmyndar. Verðið á ótryggðu rafmagni var til skamms tíma afar lágt, meðal annars vegna þess að það er skerðanlegt að fullu. Nú stendur svo á að fiskimjölsverksmiðjur verða sennilega að brenna olíu á þeirri loðnuvertíð sem framundan er og það er mjög bagalegt. Að sama skapi og ég nefndi áður með stóriðjuna mætti væntanlega kalla það illa meðferð á fé og illa meðferð á landi og náttúru ef við virkjuðum enn frekar svo aldrei þyrfti að skerða afgangsrafmagn til fiskimjölsverksmiðja sem nýttar eru skamman tíma á ári, þau ár sem bræðslufiskur veiðist yfir höfuð. Að þurfa að brenna olíu þegar rafmagnið þrýtur er afar slæmt og betri lausn er verðugt að finna.“
Þá bendir Bjarni á að vinnslugeta rafmagns á Íslandi í fyrra hafi verið 21 TWstund samkvæmt upplýsingum Orkustofnunar og er þá miðað við meðalvatnsár. Rafmagnssala á því sama ári nam hins vegar 19,1 TWstund. „Rafmagnið í landinu var því alls ekki uppselt í fyrra. Síðan þá hefur eftirspurn aukist, sennilega um 1 TWst. Heildarnotkun á rafmagni árið 2021, ef ekki þyrfti að skerða afhendingu, væri því um 20,1 TWstund, sem fer að nálgast vinnslugetuna. Það sem á vantar að vinnslugetunni sé náð væru þá um 0,9 TWstundir. Það rafmagn eitt og sér myndi duga til að knýja svo til allan fólksbílaflota landsmanna en gert er ráð fyrir að hann verði kominn að fullu á rafmagn árið 2040.“
Þá segir Bjarni það litlu breyta þó að nýjar vatnsaflsvirkjanir eða vindmyllur séu reistar. Rafmagnsvinnsla úr vatni eða vindi verði alltaf sveiflukennd á meðan veðrinu verður ekki stjórnað. Sum ár verði með mikla raforkuvinnslu en önnur ár verði lakari. Slíkt ár erum við að upplifa í ár.
Hann bendir einnig á að staðan á raforkumarkaðinum hafi breyst fljótt.„Á tímabili leit út fyrir að eitt álveranna kynni að hætta starfsemi því samningar náðust ekki um raforkuverð milli kaupanda og seljanda. Samningar tókust blessunarlega og álverið er nú í fullum rekstri. Af kísilverunum tveimur var annað lokað og hitt í erfiðleikum. Staðan er önnur og betri í dag en að halda því fram að virkja þurfi ósköpin öll og virkja strax til að við eigum rafmagn á bílana okkar var jafn rangt þá og það er nú.“