fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fréttir

Yfirlýsing Ásgeirs vegna ásakana um ritstuld sögð furðuleg – Fyrirlestri hans hjá Miðaldastofu frestað

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 9. desember 2021 11:15

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gær urðu þau tíðindi að rithöfundurinn Bergsveinn Birgisson sakaði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra um ritstuld, nánar tiltekið að hafa stuðst við bók sína, Leitin að svarta víkingnum, við ritun nýrrar bókar sinnar, Eyjan hans Ingólfs. Í báðum verkunum er kafað ofan í landnámssögu Íslands. Vísir.is fjallaði um málið í gær og sagðist Bergsveinn hafa orðið mjög sleginn er hann las bók Ásgeirs:

„Það er ekki hægt að skilja bókina öðru vísi en svo að þegar hann ekki vísar til neinna fræðimanna þá sé hann ýmist að vísa í miðaldaheimildir eða sína eigin túlkun á miðaldaheimildum. Ég sá hins vegar að hans túlkanir á miðaldaheimildum féllu á margan hátt mjög þétt og mjög saman við mínar túlkanir á þessum sömu heimildum.“

Í grein sinni um málið segir Bergsveinn:

„Svo ánægjulegt sem það annars er fyrir höfund að sjá tilgátur sínar og hugsanir reifaðar í bókum annarra, er það að sama skapi martröð að sjá aðra setja fram tilgátur manns án þess að umræddra verka sé getið. 

Því þótt tilgátur úr áðurnefndum verkum mínum endurómi víða í bók Ásgeirs, eru þau hvergi nefnd á nafn, hvorki norsk né íslensk gerð bókar, og það þótt höfundur geti ýmiskonar rita í neðanmálsgreinum.

Þá er ekki heldur svo að Ásgeir geti nafns míns, hvorki neðanmáls né í aðaltexta, sem hefði þó getað talist höfundi til tekna. Hér er því um ritstuld að ræða, og það svo umfangsmikinn að mér er til efs að viðlíka dæmi séu til í sögu íslenskrar bókaútgáfu.“

Bergsveinn segir að Ásgeir hafi ekki gerst sekur um beinan textastuld heldur hugmyndastuld. Bergsveinn rekur síðan allmörg dæmi þar sem Ásgeir á að hafa fengið hugmyndir sínar úr bók hans án þess að geta þeirra, þar sem hann kemst „óvænt“ að sömu niðurstöðum og hann. Hann sakar Ásgeir líka um að fara vitlaust með sumt af því sem hann „stelur“ úr bók sinni.

Hefur Bergsveinn ákveðið að tilkynna málið til Siðanefndar Háskóla Íslands og Nefndar um vandaða starfshætti í vísindum.

Ásgeir neitar ásökunum um ritstuld

Ásgeir sendi Vísi yfirlýsingu í gær þar sem hann hafnar ásökunum Bergsveins um ritstuld. Segist hann vísa ásökunum hans á bug. Segist hann aldrei hafa haldið því fram að hugmyndir sínar væru nýjar heldur væri hann í einhverjum tilvikum að lýsa viðurkenndri söguskoðun:

„Mér koma mjög á óvart ásakanir Bergsveins Birgissonar um ritstuld sem hafa nú komið fram. Því er til að svara að ég nýtti ekki bók Bergsveins við skrif mín.

Margir sagnfræðingar hafa lýst upphafi landnáms sem veiðimannasamfélagi og það er að mínu viti orðið að viðurkenndri söguskoðun. Um þetta er fjallað í upphafi bókar minnar Eyjan hans Ingólfs og ég hef aldrei álitið að ég væri að leggja eitthvað nýtt mörkum í því efni.

Annars er bók mín hagsöguleg greining á landnáminu með áherslu á tengslin við Suðureyjar og stofnanauppbyggingu landsins fram að stofnun Alþingis. Áherslan er á verslun og viðskipti og síðan stofnanabyggingu landsins í breiðu samhengi.

Ég vísa þessum ásökunum Bergsveins því alfarið á bug.“

Jón Viðar gagnrýnir Ásgeir

Töluverðar umræður spunnust um málið á samfélagsmiðlum í gær og hinn þekkti gagnrýnandi og fræðimaður, Jón Viðar Jónsson, vekur athygli á því að Ásgeir hafi ekki svarað Bergsveini í neinum efnisatriðum og hafi ekki brugðist efnislega við ítarlegum og sundurliðuðum ásökunum hans. Jón segir:

„…það versta er að Ásgeir skuli leyfa sér að bregðast við ítarlegri grein Bergsveins með þeim hætti sem hann gerir. Hið eina sem hann segir þarna er sem sé þetta: „Annars er bók mín hagsöguleg greining á landnáminu með áherslu á tengslin við Suðureyjar og stofnanauppbyggingu landsins fram að stofnun Alþingis. Áherslan er á verslun og viðskipti og síðan stofnanabyggingu landsins í breiðu samhengi.“ Klausan gæti verið auglýsingatexti á bókarkápu, en sem „svar“ við beinskeyttri og nákvæmri Bergsveins er hún svo óboðleg að engu tali tekur, ég tala nú ekki um þegar einn af æðstu embættismönnum þjóðarinnar, maður sem sjálfur skartar doktorsnafnbót og fer ekki leynt með, á í hlut.“

Fyrirlestri Ásgeirs um bókina frestað

Í dag kl. 16:30 var á dagskrá hjá Miðaldastofu fyrirlestur Ásgeirs undir yfirskriftinni „Efnahagsmál á landnámsöld.“ Fyrirlestrinum hefur nú verið frestað án þess að nokkrar skýringar séu á því gefnar og honum hefur ekki verið valin önnur tímasetning.

DV sendi fyrirspurn til Ásgeirs þar sem óskað var eftir skýringum á frestuninni. Var hann spurður hvort frestunin væri að hans frumkvæði og hvort hún tengist ásökunum Bergsveins. Ásgeir hefur móttekið fyrirspurnina en ekki svarað henni.

Uppfært: Miðaldastofa ákvað að fresta fyrirlestrinum. Samkvæmt frétt RÚV ákvað Miðaldastofa að fresta fyrirlestri Ásgeirs vegna ásakana Bergsveins. Haraldur Bernharðsson, forstöðumaður Miðaldastofu, segist ekki dæma um sekt Ásgeirs en vilji gefa honum kost á að bregðast við ásökununum áður en fyrirlesturinn fer fram. Því hafi fyrirlestrinum verið frestað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Kristján ómyrkur í máli á fundi með borgarstjóra – Krafan er skýr

Kristján ómyrkur í máli á fundi með borgarstjóra – Krafan er skýr
Fréttir
Í gær

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“
Fréttir
Í gær

Réttarhöld hafin yfir konu sem sökuð er um að stela yfir 8 milljónum af Grunnskólanum á Þórshöfn

Réttarhöld hafin yfir konu sem sökuð er um að stela yfir 8 milljónum af Grunnskólanum á Þórshöfn