fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fréttir

Neyddur til að vera í félagi með mönnum sem hafa verið sakaðir um ótilhlýðlega háttsemi í garð kvenna – „Þetta get ég ekki fall­ist á“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 9. desember 2021 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögmaðurinn Bergur Hauksson skorar á innanríkisráðherra að breyta lögum um lögmenn og fella þar út ákvæði sem geri lögmönnum skylt að vera félagar í Lögmannafélagi Íslands. Þetta gerir hann í opnu bréfi sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

Bergur rifjar upp tvö tilvik þar sem starfandi lögmenn hafa verið sakaðir um ótilhlýðilega framkomu gegn konum og segir Bergur það fráleitt að honum sé gert skylt að vera með þessum mönnum í félagi, gegn vilja sínum.

Tældi til sín unglingsstúlkur

Fyrra dæmið sem Bergur tekur í grein sinni er grein sem Skúli Gunnar Sigfússon, gjarnan kenndur við Subway, birti fyrir nokkru þar sem hann ber lögmanninn Svein Andra Sveinsson þungum sökum. Bergur nafngreinir ekki Svein sjálfan en óumdeilanlegt er að grein Skúla sem hann vísar til fjallaði um Svein þar sem hann var þar ítrekað nafngreindur. Bergur skrifar:

„Fyr­ir þó nokkru birti Skúli Gunn­ar Sig­fús­son grein á visir.is. Í grein­inni seg­ir Skúli:

 „… er ekki ein­göngu þekkt­ur fyr­ir að tæla til sín ung­lings­stúlk­ur held­ur hef­ur hann tælt til sín ung­ar kon­ur sem eru veik­ar fyr­ir vegna fíkni­vanda og borið í þær vímu­efni. Þannig nýt­ir lögmaður­inn sér neyð þeirra og kem­ur fram vilja sín­um. Um þetta hef­ur verið fjallað á op­in­ber­um vett­vangi.

„… er gædd­ur þeirri ónátt­úru að hann tældi unga nýmóður fyr­ir nokkr­um árum þegar hún var ný­kom­in úr meðferð við fíkni­vanda. Móðirin hafði ætlað sér að standa sig fyr­ir ungt barn sitt en lögmaður­inn taldi hana á að þiggja frek­ar áfengi og kókaín heima hjá sér en að fara til barns­ins síns. Þetta gerði hann end­ur­tekið þrátt fyr­ir að hún reyndi að mót­mæla tæl­ingu hans og marg­segði hon­um að hún vildi standa sig fyr­ir barnið sitt. Móðirin náði sér aldrei eft­ir að lögmaður­inn felldi hana og tók að lok­um eigið líf inni á Vogi. Þetta hef­ur komið fram í fjöl­miðlum áður og er al­kunna.“

Bergur rekur að það sé þekkt staðreynd að menn geti látið uppi afstöðu til mála bæði með aðgerðum sem og aðgerðarleysi. Staðan í dag sé sú að Bergur og Sveinn Andri séu báðir í Lögmannafélagi Íslands enda skyldugir til slíks að lögum.

„Við lest­ur grein­ar Skúla hug­leiddi bréf­rit­ari að hans þögn mætti túlka sem samþykki á fram­an­greindri hegðun. Bréf­rit­ari sendi þess vegna upp­sögn á fé­lagsaðild sinni til stjórn­ar lög­manna­fé­lags­ins.“

Skellti henni á skrifborðið

Hitt dæmið sem Bergur nefnir varðar fyrrverandi yfirlögfræðing Landsvirkjunar, Helga Jóhannesson, sem nýleg var sakaður um ítrekaða ótilhlýðilega háttsemi í garð kvenna sem og grófa kynferðislega áreitni. Helgi baðst í kjölfarið afsökunar í færslu á Facebook og sagðist vera að vinna úr sínum málum með aðstoð fagaðila. Líkt og með Sveina Andra nafngreinir Bergur ekki Helga en það er skýrt af samhenginu hvern um er rætt. Bergur vísar til #metoo-sögu sem Telma Halldórsdóttir, lögmaður, skrifað fyrir hönd vinkonu sinnar um Helga, en vinkonunni hafði verið sagt upp störfum á LEX-lögmannsstofu eftir að hún kvartaði undan áreitni Helga.

„Nú hef­ur komið fram í dags­ljósið mál ann­ars lög­manns. Und­ir­ritaður hafði um ára­bil heyrt af hans ótil­hlýðilegu hátt­semi sem lögmaður­inn sjálf­ur viður­kenn­ir að hafa viðhaft í af­lausn­ar­beiðni sem birt­ist á mbl.is til þolenda hátt­semi hans.

Fyr­ir nokkru birti Telma Hall­dórs­dótt­ir lögmaður eft­ir­far­andi á facebooksíðu sinni:

„Hún fékk loks­ins nóg þegar hann skellti henni á skrif­borðið hjá sér og ætlaðist til þess að hún svæfi hjá sér. Henn­ar viðbrögð fyr­ir utan sjokkið var að tala við sinn yf­ir­mann sem var kona og greina frá áreitn­inni. Nokkru seinna var hún kölluð inn á fund nokk­urra eig­enda þar sem henni var sagt upp störf­um.“

Sam­kvæmt visir.is er svar lög­manns­stof­unn­ar um þetta atriði eft­ir­far­andi:

„Á sín­um tíma hafi verið brugðist við í sam­ræmi við verk­ferla sem þá voru til staðar.

Nú veit sá er þetta rit­ar ekki hvernig um­rædd­ir verkferlar eru hjá lög­manns­stof­unni. Miðað við fram­an­greint þá virðast verk­ferl­arn­ir vera með þeim hætti að ef ein­hver starfsmaður kvart­ar und­an slíkri hegðun sem Telma lýs­ir þá er hon­um sagt upp starf­inu. Er það svo?“

Skylda að vera í félagi með þessum mönnum

Bergur reyndi að segja sig úr Lögmannafélaginu en fékk þau svör að það gæti hann bara ef hann hætti að starfa við lögmennsku. Þess konar skylduaðild telur Bergur fráleita því með henni sé honum óbeint gert skylt að samþykkja ofangreinda hegðun kollega sinna í garð kvenna.

Dómstólar hafi ítrekað komist að þeirri niðurstöðu að skylduaðild að félögum brjóti gegn félagafrelsi einstaklinga og getur Bergur ekki séð nein rök fyrir skylduaðild að Lögmannafélaginu umfram þau sem hafnað hefur verið í öðrum tilvikum fyrir dómstólum. Siðareglur lögmanna segja að lögmaður skuli gæta heiðurs stéttarinnar:

„Fé­lagsaðild mín í lög­manna­fé­lag­inu myndi fela í sér, sam­an­ber fram­an­greinda siðareglu, að hegðun lög­manns­ins sem Skúli fjall­ar um væri samþykki á þeirri hegðun og ekki nóg með það held­ur fæli sú hegðun í sér að gæta heiðurs lög­manna­stétt­ar­inn­ar. Þetta get ég ekki fall­ist á, og það er þess vegna íþyngj­andi að lög­gjaf­inn ákveði að ég skuli vera í fé­lagi með mönn­um sem eru þeirr­ar gerðar sem ég tel ekki rétt­læt­an­lega.

Því skorar hann á innanríkisráðherra að taka lögin til endurskoðunar og fella út skylduaðildina.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Flugslysið hörmulega: Ákvað að fara fyrr heim til að komast á stefnumót með kærastanum

Flugslysið hörmulega: Ákvað að fara fyrr heim til að komast á stefnumót með kærastanum
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“
Fréttir
Í gær

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur
Fréttir
Í gær

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta
Fréttir
Í gær

Sakar RÚV um fúsk og óvönduð vinnubrögð- „Hvað næst RÚV?“

Sakar RÚV um fúsk og óvönduð vinnubrögð- „Hvað næst RÚV?“
Fréttir
Í gær

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“