Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur felldi tillögu borgarfulltrúa Flokks fólksins um að „foreldrar þeirra verst settu fái fríar skólamáltíðir fyrir börn sín í leik- og grunnskólum.“ Borgarfulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna felldu tillöguna, fulltrúar Flokks fólksins, Miðflokksins og Sósíalistaflokksins greiddu atkvæði með en Sjálfstæðisflokkurinn sat hjá.
Tillagan var lögð fram sem breytingatillaga við frumvarp að fjárhagsáætlun borgarinnar á borgarstjórnarfundi á þriðjudag. Í greinargerð með henni segir að áætlað sé að um eða yfir 10% íslenskra barna búi á heimilum þar sem tekjur eru undir lágtekjumörkum. Í nýlegri skýrslu Barnaheilla um fátækt kemur fram að um 22% foreldra segjast ekki geta greitt skólamat fyrir börnin sín.
Vill færa fjármagn milli sviða
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, lagði til að einstæðir foreldrar með tekjur undir 442 þúsund krónur á mánuði, það er 5,3 milljónir í árstekjur, fái fríar skólamáltíðir fyrir börn sín og er þar miðað við frítekjumark einstæðra foreldra sem njóta stuðnings. Heildarkostnaður við tillöguna er 27,5 milljónir á mánuði. Kolbrún leggur til að fjárheimildin komi til hækkunar á fjárheimildum skóla- og frístundasviðs, og verði fjármögnuð með lækkun á fjárheimildum þjónustu- og nýsköpunarsviðs.
Í greinargerð segir: „Ógn fátæktarinnar leggst mismunandi á fjölskyldur en verst á börn einstæðra foreldra, börn foreldra sem eru á örorkubótum, börn með fötlun, börn innflytjenda og börn sem tilheyra fjölskyldum með erfiðar félagslegar og efnahagslegar aðstæður. Ójöfnuður hefur aukist vegna atvinnuleysis foreldra í COVID og framtíðarhorfur eru óljósar. Ástandið hefur tekið toll af andlegri heilsu margra barna. Tilkynningar um vanrækslu, ofbeldi og áhættuhegðun barna hafa aukist um 20% – 23%.“
Útreikningar
Þá kemur fram í greinargerðinni að samkvæmt Hagstofu Íslands eru börn einstæðra foreldra í Reykjavík 7.251 undir 18 ára. Þar af er talið að 2.465 börn (34%) einstæðra foreldra búi við- og séu í hættu á að falla í fátækt. Það eru 811 börn í leikskólum og 1.654 börn í grunnskólum borgarinnar. Samkvæmt gjaldskrá Reykjavíkurborgar kosta máltíðir fyrir barn í leikskóla 12.107 kr. á mánuði og skólamáltíð í grunnskóla 10.711 kr. á mánuði. Þannig fæst kostnaðartalan upp á 27,5 milljónir króna.
Frítekjumörk einstæðra foreldra byggja á „framfærsluviðmiði“ umboðsmanns skuldara. Þar er miðað við að fólk geti aðeins veitt sér lágmarksframfærslu um takmarkaðan tíma, meðan verið er að hjálpa fólki úr skuldavanda. Þegar talað er um lágmarks framfærsluviðmið er jafnframt miðað við að fólk hefði tekjur sem duga til lágmarks framfærslukostnaðar. Lágmarks framfærsluviðmið fyrir einstætt foreldri með eitt barn á framæri er kr. 230.693. Það er fyrir utan fæðiskostnað í skóla 11.631 og húsnæðiskostnað: Húsnæði er 170.000 kr. rafmagn, hiti, hússjóður og trygging 30.000 kr. Samtals: 442.324 kr. á mánuði. Árstekjur þurfa að vera 5.307.888 kr.