fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fréttir

Kristný lenti í klónum á svikahrappi á Bland – „Þetta er ömurlegt“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 9. desember 2021 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síminn hennar Kristnýjar Marenar var að gefa sig og hún ákvað að slá til þegar maður bauð til sölu iPhone-11 á Bland.is fyrir 80.000 krónur.

Kristný býr á Dalvík og umræddur maður segist búa á Egilsstöðum og því ákvað hún að ganga frá viðskiptunum án þess að hitta manninn eða sjá símann, eins og fólk gerir oft. En því miður lendir það stundum í svikurum. Kristný hefur ekki fengið símann ennþá, né peningana til baka, og maðurinn finnst ekki. Eftir situr Kristný, 80 þúsund krónum fátækari.

Kristný kærði málið til lögreglu en maðurinn er eftirlýstur fyrir önnur sambærileg svik. Hann finnst ekki og virðist Kristnýju sem rannsókn lögreglu á málinu sé ekki virk. Vill hún gjarnan sjá að lagður verið meiri kraftur í rannsóknina og reynt að hafa hendur í hári  mannsins.

Kristný er með nafn mannsins, sem er erlendur, líklega lettneskur, en hann hefur íslenska kennitölu. Er maðurinn fæddur árið 1999. Hann gaf henni upp rangt símanúmer en ekki er skráð símanúmer á manninn á já.is eða 1819. Maðurinn er með skráð lögheimili á Selfossi. Kristný óttast að hann sé farinn úr landi og lögregla veit ekki hvar hann heldur sig.

„Þetta er ömurlegt. Þetta er mikið högg en ég jafna mig á þessu og ætla ekki að láta þetta eyðileggja fyrir mér. Hins vegar vil ég vara sem flesta við manninum. En hér eftir mun ég ekki kaupa neitt án þess að fá vöruna í hendur áður og skoða hana,“ segir Kristný.

„Hann gerði þetta við aðra konu fyrir jól í fyrra og hún hefur enn ekki fengið sinn pening til baka. Og það eru fleiri dæmi um svik hans. Það eru á annan tug kærumála komin á hann.“

Kona, sem ekki vill láta nafn síns getið, sendi Kristnýju eftirfarandi reynslusögu um svik mannsins:

„Ég taldi mig vera búna að finna jólagjöf fyrir stelpuna mína hjá honum. Hann falsaði póstmiða og þóttist hafa póstsent vöruna. En varan barst aldrei. Hann hætti síðan að svara skilaboðum.“

DV hafði samband við Bland og spurði hvernig brugðist væri við þegar ábendingar bærust um að notendur á vefnum stunduðu svik. Þjónustustjóri Blands sendi DV eftirfarandi svar:

„Ef svik koma upp þá skoðum við málið og viðkomandi notanda er eytt út hjá okkur ef um svik er að ræða og einnig er lokað á kennitöluna, svo ekki er hægt að gera annan aðgang.

Ef notendur lenda í svikum bendum við líka á lögregluna og vinnum svo í framhaldinu með henni og gefum upp viðeigandi upplýsingar um notandann svo heldur lögreglan áfram með málið sín megin eftir að upplýsingar hafa borist frá okkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Flugslysið hörmulega: Ákvað að fara fyrr heim til að komast á stefnumót með kærastanum

Flugslysið hörmulega: Ákvað að fara fyrr heim til að komast á stefnumót með kærastanum
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“
Fréttir
Í gær

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur
Fréttir
Í gær

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta
Fréttir
Í gær

Sakar RÚV um fúsk og óvönduð vinnubrögð- „Hvað næst RÚV?“

Sakar RÚV um fúsk og óvönduð vinnubrögð- „Hvað næst RÚV?“
Fréttir
Í gær

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“