Hörður Sigurjónsson, sem hefur hlotið viðurnefnið „Snapchat-perri“ eftir látlausa áreitni sína við börn í gegnum samskiptaforritið Snapchat, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir ítrekaða umfjöllun um áreiti hans gegn börnum. Hörður var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna gruns um fjölmörg brot gegn börnum.
DV fjallaði um Hörð í sumar eftir að íslensk móðir veiddi hann í gildru með því að þykjast vera 16 ára stúlka. „Sonur minn er að verða 15 ára, vinkona hans var að ræða við hann um þennan mann, hvað hann var að senda henni og ég eiginlega bað hann um að gefa mér notendanafnið til að fá spjalla við hann sjálf,“ sagði móðirin í samtali við DV í sumar.
Mánuði eftir að fjallað var um Hörð í sumar ræddi DV við hann. Þar kannast hann við að hafa verið handtekinn tvisvar vegna ásakana um netáreitni gegn börnum og unglingum. Hann sagðist þó ekki eiga von á ákæru. „Það verður aldrei ákært, það er ekkert sakarefni, það er ekkert brot. Ábyrgðin er foreldranna. Ég er heiðarlegur maður.“
Sjá einnig: Snapchat-perrinn Hörður ræðir við DV –„Ábyrgðin er foreldranna. Ég er heiðarlegur maður“
Áreiti Harðar virðist ekki hafa hætt eftir fréttaflutninginn, ef marka má frásagnir mæðra sem DV hefur rætt við. Ef eitthvað virðist hann hafa tvíeflst við iðju sína. Í nóvember fjallaði DV um að hann héldi áreitinu áfram og í desember kom fram í máli mæðrahóps að hann væri að herja á mörg börn í sama skólanum.
Ljóst er að kærurnar gegn Herði hafa borið árangur þar sem hann situr nú í gæsluvarðhaldi. Vitað er til þess að minnst sjö kærur hafa verið lagðar fram gegn honum.
Tvær mæður barna sem Hörður hefur, að þeirra sögn, áreitt lýsa nú í samtali við DV mikilli ánægju sinni með gæsluvarðhaldið yfir Herði.