fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fréttir

COVID-19 er stærsta áskorun í 75 ára sögu UNICEF

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 9. desember 2021 17:00

Sex mánaða barn frá Malí, Aissata Kanitao, nærir sig.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fagnar í dag 75 ára afmæli. Í tilkynningu frá stofnuninni kemur fram að afmælinu sé fagnað í skugga heimsfaraldurs Covid-19 sem hafi grafið undan nær öllum framförum í þágu barna síðustu áratugi. Heimsfaraldurinn sé einfaldlega erfiðasta áskorunin í sögu UNICEF.

Stoðum er rennt undir þessar fullyrðingar í nýrri skýrslu –  Preventing a lost decade: Urgent action to reverse the devastating impact of COVID-19 on children and young people  – sem birtist í dag. Í henni kemur fram að um hundrað milljón fleiri börn lifi nú við fjölþætta fátækt. Auk fátæktar eru afleiðingar Covid-19, skert heilbrigðisþjónusta, aðgengi að menntun, næringu, barnavernd og geðheilbrigðisþjónustu. Réttindum barna er ógnað nú sem aldrei fyrr.

„Í gegnum tíðina hefur UNICEF lagt grunn að heilbrigðara og öruggara umhverfi fyrir börn um allan heim með frábærum árangri fyrir milljónir barna. Þessum árangri er nú ógnað,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, í tilefni útgáfu skýrslunnar.

Stærsta ógnin við réttindi barna

„Heimsfaraldur COVID-19 er stærsta ógn við framfarir í þágu barna í 75 ára sögu okkar. Fleiri börn á heimsvísu búa nú við hungur, ofbeldi, misnotkun, fátækt, skert aðgengi að menntun, heilbrigðisþjónustu, matvælaöryggi og grunnþjónustu. Staða barna hefur tekið mörg skref aftur á bak.“

Í skýrslunni kemur fram að börnum sem búa nú við fjölþætta fátækt vegna heimsfaraldursins hefur fjölgað um 100 milljónir eða sem nemur 10 prósenta aukningu frá árinu 2019. Samkvæmt niðurstöðu skýrslunnar er áætlað, jafnvel þó miðað sé við bestu mögulegu sviðsmyndina, að það muni taka sjö til átta ár að ná jafnvægi í þeim fjölda barna sem búa við fátækt og endurheimta þá stöðu sem var fyrir heimsfaraldur COVID-19.

Meðal annarra niðurstaðna skýrslunnar eru að börnum sem búa á heimili þar sem fjárhagsleg fátækt ríkir hefur fjölgað um 60 milljónir frá því fyrir heimsfaraldurinn og að árið 2020 hafi 23 milljónir barna misst af grunnbólusetningum eða fjórum milljónum fleiri börn en árið 2019.

Aðrar niðurstöður:

  • Á hápunkti faraldursins voru 1,6 milljarðar barna ekki í skóla vegna lokana;
  • Geðheilbrigðisvandi hefur hrjáð rúmlega 13 prósent ungmenna á aldrinum 10-19 ára á heimsvísu. Þá raskaði heimsfaraldurinn nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu hjá 93% þjóða á heimsvísu;
  • 10 milljón fleiri barnahjónabönd munu verða að veruleika vegna afleiðinga faraldursins næsta áratuginn;
  • Fjöldi barna í barnaþrælkun hefur náð 160 milljónum á heimsvísu og hefur sá fjöldi aukist um 8,4 milljónir á síðustu fjórum árum. Fátækt vegna faraldursins setur 9 milljónir barna til viðbótar í hættu á að vera hrakin til vinnu fyrir árslok 2022.
  • 50 milljónir barna þjást af rýrnun, hættulegustu tegund vannæringar, og áætlað er að þessi tala hækki um 9 milljónir fyrir árslok 2022.

Stödd á krossgötum
En ekki eru allar ógnir sem steðja að réttindum barna tengdar COVID-19.  426 milljónir barna, nærri eitt af hverjum fimm börnum, búa á átakasvæðum. Þörf á mannúðaraðstoð er í 80% tilfella tengd átökum. Aukinheldur búa 1 milljarður barna í löndum sem eru í mikilli hættu vegna áhrifa hamfarahlýnunar. Það er því óhætt að segja að skýrsla þessi dragi upp ansi dökka mynd. UNICEF ætlar sér þó nú, sem endranær, að halda áfram þrotlausri baráttu sinni gegn þessari þróun og í þágu réttinda barna.

„Á tímum heimsfaraldurs, aukinna átaka og hamfarahlýnunar hefur aldrei verið mikilvægara að setja börnin í fyrsta sætið,“ segir Henrietta Fore.

„Við erum stödd á krossgötum. Á meðan við höldum áfram að vinna með stjórnvöldum, styrktaraðilum og öðrum stofnunum um allan heim í að kortleggja sameiginlega vegferð okkar til næstu 75 ára, þá verðum við að auka fjárfestingu í málefnum barna. Setjum fjárfestingu í börnum í fyrsta sætið og niðurskurð í málefnum barna í það síðasta. Loforð okkar um bætta framtíð er byggt á grunni þess hvað við setjum í forgang í nútíðinni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Flugslysið hörmulega: Ákvað að fara fyrr heim til að komast á stefnumót með kærastanum

Flugslysið hörmulega: Ákvað að fara fyrr heim til að komast á stefnumót með kærastanum
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“
Fréttir
Í gær

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur
Fréttir
Í gær

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta
Fréttir
Í gær

Sakar RÚV um fúsk og óvönduð vinnubrögð- „Hvað næst RÚV?“

Sakar RÚV um fúsk og óvönduð vinnubrögð- „Hvað næst RÚV?“
Fréttir
Í gær

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“