UPPFÆRT: Stúlkan er fundin heil á húfi
Leit lögreglu og björgunarsveita stendur nú yfir að 17 ára stúlku sem síðast sást til á Smiðjuvegi í Kópavogi um hálfsexleytið í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hvorki nafn stúlkunnar né mynd af henni verða birt en hún er sögð vera 161 cm á hæð, klædd í rauðar náttbuxur, gráa hettupeysu og gráa Brooks-skó.
Óttast er um stúlkuna og því brýnt að hún finnist sem fyrst. Talið er mögulegt að stúlkan hafi farið í Hlíðahverfi í dag.
Þau sem hafa séð til stúlkunnar eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögreglu í síma 112.