Gul viðvörun Veðurstofunnar gildir fyrir meirihluta landsins í dag og verður suðaustan hvassviðri eða stormur. Lausamunir gætu fokið í veðrinu í dag og varað er við allt að 40 m/s vindhviðum undir Eyjafjöllum, við Hafnarfjall, á Kjalarnesi og víðar.
Á höfuðborgarsvæðinu verða 15 til 23 m/s, hvassast í efri byggðum og á Kjalarnesi. Mikil rigning og hláka verða síðdegis.