Samkvæmt áreiðanlegum heimildum var hópur sem viðriðinn var blóðug átök í Hagkaupum Spönginni um kvöldmatarleytið í gærkvöld á unglingsaldri. Árásarmaður sagðist sjálfur vera 14 ára. Sjónarvottur sem DV ræddi við í morgun sagðist eiga erfitt með að sjá aldur á fólki en taldi hópinn hafa verið á aldrinum 18 til 20 ára. Það reyndist ekki rétt.
DV hefur einnig öruggar heimildir fyrir því að starfsfólk frá barnavernd hafi mætt á vettvang vegna málsins. Málið er talið tengjast búðarþjófnaði sem hefur verið mikið vandamál í Hagkaupum Spönginni undanfarið, ekki síst á meðal unglinga á grunnskólaaldri.
Er DV ræddi við lögreglu í morgun fengust þær upplýsingar að verið væri að safna gögnum og málið væri í rannsókn en ekki væri hægt að veita frekari upplýsingar.
DV ræddi við mann sem tók þátt í að yfirbuga hinn árásarmanninn í gærkvöld. Hann lýsir atburðarásinni svo:
„Ég kom þarna inn með konunni minni og tveimur yngri krökkunum mínum. Ég sá hóp af ungum krökkum þarna við afgreiðslukassana en áttaði mig ekki strax á því að eitthvað mikið væri í gangi,“ en segist síðan hafa séð árásarmanninn unga, sem áður hefur verið nefndur, ganga í skrokk á afgreiðslumanni bak við kassann og skipa honum að opna dyrnar inn á skrifstofu.
Ég gríp ásamt einhverjum öðrum í hann, sný hann niður og læsi handleggnum á honum undir fætinum á mér. Hann barðist um og hótaði mér á fullu en ég sagðist ekki sleppa honum fyrr en lögregla kæmi á vettvang. Eftir dálitla stund sagðist hann vera 14 ára, en ég var ekki tilbúinn að sleppa honum, starfsfólk var þarna í hættu og börnin mín voru hrædd.“
Maðurinn segir að minnst fimm lögreglubílar og einn sjúkrabíll hafi komið á vettvang. Hann segir jafnframt að krakkarnir sem áttu í hlut hafi hringt í vini sína sem komu í stórum hópum að versluninni.
Sem fyrr segir hefur DV heimildir fyrir því að búðarþjófnaður unglinga á þessum aldri sé mikið vandamál í Hagkaupum Spönginni. Hefur mest kveðið að slíku yfir daginn en þessi afbrot eru farin að færast inn í kvöldin. Atvikið í gær átti sér stað á milli kl. 19 og 20. DV hefur ennfremur heimildir fyrir því að einn starfsmaður hafi nefbrotnað í árásinni í gærkvöld.