Lögreglan á Akureyri fékk tilkynningu kl.2.00 í nótt um að kona á áttræðisaldri sem glímir við alzheimer-sjúkdóminn hefði farið að heiman um miðnætti og rataði líklega ekki heim aftur.
Samkvæmt tilkynningu á Facebook-síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra þá hófst strax eftirgrennslan eftir konunni að hálfu lögreglu og þá voru björgunarsveitir í Eyjafirði sem og Þingey ræstar út til aðstoðar og leitar og aðgerðastjórn virkjuð.
Í færslunni kom fram að leitað var með skipulögðum hætti út frá heimili viðkomandi og var það gert með fjölda björgunarsveitarmanna, lögreglumanna, drónum og leitarhundi.
Að endingu fannst konan heil á húfi laust fyrir kl.07.00 í morgun, þá enn á gangi og búin að ganga rúmlega 3 kílómetra frá heimili sínu.