fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Fékk endurnýjað starfsleyfi þrátt fyrir grun um að vera valdur að dauða sjúklings – Aðstandandi bindur vonir við Guðlaug Þór

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 16. nóvember 2021 11:15

Skúli Tómas Gunnlaugsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skúli Tómas Gunnlaugsson, fyrrverandi yfirlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, fékk í gær endurnýjað starfsleyfi sem læknir til næstu 12 mánaða, þrátt fyrir að vera til rannsóknar hjá lögreglu vegna kæru og gruns um að vera valdur að dauða að minnsta kosti eins sjúklings á HSS með því að hafa sett viðkomandi sjúkling í lífslokameðferð að nauðsynjalausu.

Mannlíf skýrði frá þessu í gærkvöld.

Skúli var sviptur lækningaleyfi í kjölfar niðurstöðu Landlæknis á vinnubrögðum hans hjá HSS. Lögreglurannsókn stendur yfir á störfum Skúla en hann grunaður um alvarleg brot gegn minnst sex sjúklingum. Hann fékk hins vegar svokallað takmarkað starfsleyfi þann 12. maí síðastliðinn og hefur síðan þá starfað á Landspítala. Í svari við fyrirspurn DV um málið í sumar sagðist Landlæknisembættið ekki geta tjáð sig um málefni einstaklinga en svaraði svo almennt um veitingu takmarkaðra starfsleyfa:

„Takmörkun starfsleyfis heilbrigðisstarfsmanna, lækna sem annarra, getur verið með ýmsum hætti. T.d. tímabundið leyfi, leyfi sem er takmarkað við tilgreindan vinnustað, leyfi sem er háð handleiðslu, leyfi sem felur í sér að viðkomandi má ekki sinna ákveðnum verkefnum o.s.frv. Takmörkun er metin í hverju tilviki fyrir sig. Almennt gildir um takmörkuð starfsleyfi að viðkomandi starfar undir eftirliti eða umsjón á vinnustaðnum. Almennt gildir að sá sem viðkomandi heilbrigðisstarfsmaður vinnur hjá sendir embætti landlæknis greinargerð um framvindu.“

Í sumar fengu sex fjölskyldur réttargæslumenn í tengslum við rannsókn lögreglu á störfum Skúla. Þann 1. mars var greint frá því að börn konu sem lést á HSS haustið 2019 hefðu kært Skúla til lögreglu. Móðirin var lögð inn til hvíldarinnlagnar á HSS, hún var sjúklingur en ekki í lífshættu. En samdægurs var hún sett í lífslokameðferð. Eiginmanni hennar var tjáð að hún væri dauðvona og það væri ekkert hægt að gera fyrir hana nema reyna að lina þjáningar hennar. Konan hafði hins vegar ekki hugmynd um þetta sjálf og aldrei var rætt við hana um að hún væri í lífslokameðferð. Lífslokameðferð, sem eingöngu á að setja dauðvona sjúklinga í, og þá ávallt í samráði við ættingja, enda um teymisvinnu að ræða, varir yfirleitt í nokkra daga. En það tók konuna 11 vikur að deyja á HSS. Smám saman missti hún allan mátt, meðal annars vegna vannæringar.

„Hún stendur í þeirri trú að hún sé bara að koma þarna inn í nokkra daga til að hvíla sig. Það er mjög fljótlega farið að dæla í hana mjög slævandi lyfjum. Hún fær hvorki tækifæri til að hafna eða taka þátt í þeirri ákvörðun að hún sé sett á lífslokameðferð, né fær hún tækifæri til að hafna þessari lyfjameðferð né öðrum inngripum í hennar líkama,“ sagði Borghildur Hauksdóttir, eitt barna konunnar, í viðtali við útvarpsþáttinn Harmageddon þann 1. mars.

Skorar á heilbrigðisráðherra að taka völdin af landlækni

Takmarkað starfsleyfi Skúla rann út þann 12. nóvember síðastliðinn og daginn eftir var nafn hans hvergi að finna í starfsleyfaskrá Landlæknis. En núna er nafn hans aftur komið í skrána og gildir starfsleyfi hans frá 12. nóvember 2021 til 12. nóvember 2022.

Eva Hauksdóttir, eitt barna konunnar sem lést á HSS haustið 2019, hefur sent heilbrigðisráðuneytinu kröfu um að heilbrigðisráðherra beiti yfirstjórnunarheimildum gagnvart Landlækni. Eins og alþjóð veit eru stjórnarmyndunarviðræður á lokametrunum og framundan er skipan í ráðuneyti. Miklar líkur eru taldar á því að Sjálfstæðisflokkurinn fái heilbrigðisráðuneytið að þessu sinni og telur Eva allar líkur standa til þess að Guðlaugur Þór Þórðarsson, núverandi utanríkisráðherra, verði heilbrigðisráðherra. Eva bindur vonir til þess að Guðlaugur Þór grípi inn í málið og taki völdin af Landlækni, en hún segir:

„Það var ekki lítill fugl sem hvíslaði því að mér heldur stórt fuglabjarg sem skrækir hástöfum að Guðlaugur Þór verði heilbrigðisráðherra. Hann mun vafalaust bregðast við af því hugrekki og myndugleik sem hann hefur sýnt af sér hingað til.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Flugstjórinn sá eini sem komst lífs af

Flugstjórinn sá eini sem komst lífs af
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Baráttumaðurinn Unnar Karl Halldórsson fallinn frá

Baráttumaðurinn Unnar Karl Halldórsson fallinn frá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð