Margrét Friðriksdóttir, sem rekur vefinn Fréttin.is, er allt annað en sátt eftir að hún fékk einkaskilaboð frá tónlistarmanninum Friðriki Ómari Hjörleifssyni. Mannlíf fjallaði um málið fyrr í dag.
„Sæl Margrét. Má ég spyrja þig? Ertu óbólusett? Kv. Friðrik“ skrifaði Friðrik í einkaskilaboðunum sem hann sendi til Margrétar. Forvitni Friðriks stafar af því að hann vill ekki fá óbólusetta einstaklinga á tónleikana sína, Margrét má því ekki mæta þar sem hún er ekki bólusett. Það þurfti þó ekki að spyrja Margréti að því þar sem hún greinir sjálf frá því á Facebook-síðu sinni.
Ástæðan fyrir því að Friðrik vill ekki fá óbólusetta einstaklinga á tónleika hjá sér er sú að þeir eru í meiri hættu á að verða veikir. „Friðrik Ómar sendir mér einkaskilaboð og spyr hvort ég sé óbólusett. Er þetta í lagi vill hann kannski líka vita í hvaða blóðflokk ég er?“ skrifar Margrét á Facebook-síðu sína í dag en hún birtir skjáskot af skilaboðunum sem Friðrik sendi á hana.
Margrét svaraði einkaskilaboðunum sem Friðrik sendi en hún birtir einnig skjáskot af svarinu sínu. „Sæll Friðrik. Hvað varðar þig um það hvað ég geri og vel fyrir minn líkama og heilsu?“ segir hún.
„Hvað varðar þessum manni um hvort ég er bólusett eða ekki, bara háborinn dónaskapur svo ekki meira sé sagt.“
Þó svo að Margrét fái ekki stuðning frá Friðriki Ómari fyrir að vera óbólusett þá er annar tónlistarmaður sem stendur þétt við bakið á henni. Það er enginn annar en Gylfi Viðar Ægisson en hann hrósaði henni í dag með færslu sem hann birti á vegg Margrétar. „Þú stendur þig vel Margrét mín!“ skrifaði hann.