Í gær greindust minnst 139 með veiruna samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Í tilkynningu almannavarnadeildar segir:
„Í gær, laugardaginn 13. nóvember greindust 139 (heildartala) með COVID-19 smit, þar af voru þrír sem greindust sem landamærasmit. Af þessari heildartölu voru 59 í sóttkví. Alls eru núna 1664 í einangrun og 2733 í sóttkví. Eins og áður um helgar þá teljast þessar tölur sem bráðabirgðatölur. Fjöldi PCR sýna sem tekin voru í gær kemur fram á covid.is þegar heimasíðan verður uppfærð aftur á morgun, mánudaginn 15. nóvember. „