Nokkuð færri Covid-smit greindust í gær, föstudag, en undanfarna daga. Greindust 130 innanlandssmit og fimm greindust á landamærum.
Af þessum voru 57 í sóttkví.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum en þar segir einnig:
„Eins og áður um helgar þá teljast þessar tölur sem bráðabirgðatölur. Fjöldi PCR sýna sem tekin voru í gær kemur fram á covid.is þegar heimasíðan verður uppfærð aftur nk. mánudag.“