Valgerður Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Velferðarsjóðs barna, lést á Landspítalanum í gær, 70 ára að aldri. Kári Stefánsson, eiginmaður Valgerðar og forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, greindi frá andláti eiginkonu sinnar á Facebook-síðu sinni í dag.
„Ástin mín hún Valgerður Ólafsdóttir, sem var förunautur minn í 53 ár lést á Landspítalanum í gær. Fyrir neðan eru tvö ljóð til hennar,“ skrifar Kári en hér fyrir neðan má lesa ljóðin sem hann skrifaði til Valgerðar.
Vala
I remember lost causes
as well as those fought
to victory.
I remember men who fell
by the wayside.
I remember smiles that
never took place.
I remember poems
that were never written
and I remember
her
as a young woman
with a face like no other face,
with all the beauty
of this world and
all other worlds in one face.
I remember sadness in the face
of all faces that should have
been quenched,
but wasn´t.
I remember my inadequacies
and failures.
I remember the pain from
not being able to
deal with her pain
as a part of her.
I remember letting down
the only woman I ever loved.Vala
ég hlusta
til þess eins
að heyra
í þér
hjarta sem slær
í takt
við veröld svo fjarri
Dagur að drekka kaffi
á Mokka eða Tröð
að telja kjark
í byltingasinnaða snáða
og þú í appelsínugulum kjól
og allt sem ég gat gert fyrir þig
en gerði ekki
og get ekki meir.
Guð hvað þetta er gallað líf
sem ég hef lifað
og langt frá því
að ríma við góðan smekk