fbpx
Miðvikudagur 22.janúar 2025
Fréttir

Tæp 13% íslenskra barna eiga á hættu að glíma við fátækt – Stjórnvöld hafa ekkert plan til að uppræta vandann

Erla Hlynsdóttir
Miðvikudaginn 10. nóvember 2021 13:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á Íslandi er engin skilgreining til á fátækt meðal barna né opinber stefna eða áætlun um að uppræta fátækt á meðal barna. Það kemur fram í nýrri skýrslu um fátækt barna sem Barnaheill – Save the Children sem Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnisstjóri Barnaheilla, kynnti á morgunverðarfundi í morgun.

Fundurinn bar yfirskriftina „Fátækt barna – hver getur haft áhrif?“ og var haldinn af fræðslu- og forvarnahópnum Náum áttum.

Í skýrslunni er sérstaklega skoðuð þátttaka barna í leikskólum (Early childhood education and care), skólamáltíðir og næring barna, þátttaka í tómstundum, heilsugæsla og húsnæðismál barna og fjölskyldna þeirra. Skoðuð er sú þjónusta sem börnum stendur til boða og kostnaður fjölskyldna.

Ísland er eina þátttökulandið sem hefur enga skilgreiningu á fátækt meðal barna. Jafnframt er engin opinber stefna eða áætlun á Íslandi um að uppræta fátækt meðal barna, né þátttöku þeirra.

12,7% barna á Íslandi eiga á hættu að búa við fátækt og er sú tala sú lægsta af þeim löndum sem tóku þátt í gerð skýrslunnar. Albanía mælist með mestu fátækt meðal barna þar sem 49,4% barna býr við fátækt. Margrét Júlía bendir á að nýjustu tölur séu frá árinu 2019 og því geti staðan hafa breyst eftir tilkomu Covid-19.

Þeir hópar barnafjölskyldna á Íslandi sem eru sérstaklega viðkvæmir fyrir fátækt og félagslegri einangrun eru einstæðir foreldrar, fjölskyldur með lágar tekjur, fjölskyldur með fötluð börn, fjölskyldur þar sem foreldri er á örorkubótum, flóttabörn og börn í fjölskyldum sem búa við erfiðar félaglegar aðstæður.

90% foreldra á örorkubótum á Íslandi segja bæturnar ófullnægjandi, 80% geta ekki mætt óvæntum útgjöldum, 22% segjast ekki geta greitt skólamat fyrir börn sín og 19% ekki geta greitt fyrir frístund eða tómstundir barna sinna.

„Kostnaður við húsnæði er einn stærsti útgjaldaliður fjölskyldna á Íslandi og búa margar þeirra við óöryggi, þröngan húsnæðiskost og í óviðunandi húsnæði.

Við þessu þarf að bregðast. Ekkert barn á að þurfa að alast upp við ótryggar húsnæðisaðstæður,“ segir Margrét Júlía.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi fylgjast með stöðu barna og hafa áhyggjur af því að ójöfnuður meðal barna aukist vegna atvinnuleysis sökum Covid-19. Í janúar 2021 var atvinnuleysi 8,2% samanborðið við 4,8% í janúar 2020. Skráð atvinnuleysi var þó komið niður í 5% í september 2021, en of snemmt er að segja til um hvernig þróunin verður og áhrifin á börn og barnafjölskyldur. Atvinnuleysi hefur sérstaklega mikil áhrif á lágtekjufjölskyldur og þær eiga því helst á hættu að lenda í fátækt og félagslegri einangrun.

Áhrif Covid-19 á andlega heilsu barna og aðstæður í fjölskyldum er töluverð. Tilkynningar til barnavernda á Íslandi um vanrækslu jókst um 20% frá mars 2020 til mars 2021, tilkynningar um ofbeldi um 23%, áhættuhegðun barna um 3% og gruns um að líf og heilsa ófæddra barna væri í hættu um 68%.

Hér má lesa nánar um niðurstöður skýrslunnar. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands mótmæla Coda Terminal – „Allt of mörgum spurningum er ósvarað“

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands mótmæla Coda Terminal – „Allt of mörgum spurningum er ósvarað“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Örn vill að borgin setji lóðaleigu á flugvöllinn – „Þeir rændu þá besta mannvistar- og byggingarsvæði Reykvíkinga“

Örn vill að borgin setji lóðaleigu á flugvöllinn – „Þeir rændu þá besta mannvistar- og byggingarsvæði Reykvíkinga“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ökukennari segir illa komið fram við eldri ökumenn: „Að mínu mati al­gjör­lega út í hött“

Ökukennari segir illa komið fram við eldri ökumenn: „Að mínu mati al­gjör­lega út í hött“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Dagur kveður borgarstjórn eftir nær aldarfjórðung – „Ég elska Reykjavík“

Dagur kveður borgarstjórn eftir nær aldarfjórðung – „Ég elska Reykjavík“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Illugi ómyrkur í máli – „Þetta var Hitlers-kveðja og ekkert annað“

Illugi ómyrkur í máli – „Þetta var Hitlers-kveðja og ekkert annað“
Fréttir
Í gær

Höggvinn með exi á A. Hansen – Svaraði fyrir sig með hnefunum 20 árum síðar á Castello

Höggvinn með exi á A. Hansen – Svaraði fyrir sig með hnefunum 20 árum síðar á Castello
Fréttir
Í gær

Maður á sextugsaldri misþyrmdi lögreglumanni í Þarabakka

Maður á sextugsaldri misþyrmdi lögreglumanni í Þarabakka