fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Upplausn í Eflingu – Meirihluti stjórnar skorar á Guðmund að segja sig úr stjórn og mótmæla framgöngu hans

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 1. nóvember 2021 19:31

Guðmundur Baldursson. Mynd: Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meirihluti stjórnar Eflingar hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem framgöngu Guðmundar Baldurssonar, stjórnarmanns, er mótmælt og hann hvattur til að segja sig úr stjórninni. Hann hafi ófrægt stjórnina á opinberum vettvangi með ásökunum um að stjórnin beri ekki hag félagsmanna fyrir brjósti og hafi lýst yfir ásetningi sínum að beita sér fyrir stofnun klofningsfélag.

Það var Guðmundur sem steig fram í fjölmiðlum á föstudaginn og furðaði sig á því að fráfarandi formaður Eflingar, Sólveig Anna Jónsdóttir, hafi neitað að afhenda stjórn Eflingar ályktun trúnaðarmanna sem var lögð fram í júní á þessu ári þar sem áhyggjur voru viðraðar af líðan starfsmanna sem töldu framgöngu Sólveigar minna á ógnarstjórn. Sólveig Anna óskaði eftir því að starfsmenn bæru til baka þessar ásakanir á föstudag en urðu þeir ekki við því og sendu frá sér ályktun þar sem óskað var eftir því að stjórnendur Eflingar viðurkenni ábyrgð á vandamálum innanhúss og leysi úr þeim.

Sólveig Anna túlkaði afstöðu starfsmanna sem vantraustsyfirlýsingu og sagði af sér sem formaður í gær.

Meirihluti stjórnar Eflingar hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem framganga Guðmundar í málinu er gagnrýnd.

„Vegna yfirlýsingar Guðmundar Baldurssonar stjórnarmanns í Eflingu frá því í dag 1. nóvember viljum við undirrituð, meirihluti stjórnar Eflingar, koma eftirfarandi á framfæri:

Trúnaðarmenn starfsfólks á skrifstofu Eflingar hafa aldrei lagt fram við okkur ályktun sína frá því í júní á þessu ári. Við teljum eðlilegt að fjalla um mál séu þau lögð fyrir stjórn, en ekki að einstakir stjórnarmenn krefjist umfjöllunar um mál sem varða starfsmenn og framlagningar gagna þeim tengd án þess að aðilar máls hafi óskað þess. Slík vinnubrögð eru að okkar mati ekki eðlileg heldur ofríki.

Guðmundur Baldursson er frjáls að sínum skoðunum á því hvað hann vill að stjórn félagsins hlutist til um, en hann er þó bundinn af lýðræðislegu meirihlutasamþykki varðandi ákvarðanir stjórnar rétt eins og aðrir stjórnarmenn. Að sama skapi er lítið við því að gera þótt kröfur Guðmundar til ASÍ og SGS um íhlutun þessara sambanda í störf stjórnar Eflingar hafi reynst tilhæfulausar. Það stoðar lítt fyrir hann að barma sér yfir því í fjölmiðlum.

Við mótmælum niðrandi orðum Guðmundar um kynningu mannauðsstjóra á stjórnarfundi í sumar. Sú kynning var vönduð og til marks um gott starf í þeim málum á skrifstofunni. Við höfum á síðustu árum oft fengið kynningar frá stjórnendum vinnustaðarins þar sem óskað hefur verið eftir stuðningi og samþykki okkar fyrir ýmsum umbótum í starfsmannamálum. Dæmi um slíkt eru stytting vinnuvikunnar í tvígang, ráðning mannauðsstjóra, smíði starfsmannastefnu og starfsmannahandbókar, mánaðarlegar starfsánægjukannanir, kosning trúnaðarmanna sem var óheimil í tíð fyrri formanns, mánaðarlegir starfsmannafundir og regluleg starfsmannasamtöl. Við höfum ávallt stutt og samþykkt slíkar umbætur enda hefur okkur sýnst vel að þeim staðið og viljum allt hið besta fyrir starfsfólk Eflingar.

Þá viljum við segja að við mótmælum framgöngu Guðmundar Baldurssonar á opinberum vettvangi þar sem hann vísar m.a. í umræður á stjórnarfundum, sem er trúnaðarbrestur við stjórn félagsins.

Guðmundar hefur áður ófrægt okkur, félaga sína í stjórn félagsins, á opinberum vettvangi með ásökunum um við berum hag félagsmanna ekki fyrir brjósti. Guðmundur hefur gengið svo langt að kenna stjórn Eflingar um það að hópbifreiðastjórar hafi mætt illa á fund sem starfsfólk félagsins varði mikilli orku í að halda að ósk hans. Guðmundur mætti sjálfur ekki á þann fund, ekki frekar en aðra fundi með félagsmönnum Eflingar þar sem hann hefur iðulega verið fjarverandi.

Guðmundur hefur jafnframt lýst yfir þeirri skoðun sinni að hagsmunum félagsmanna Eflingar sé betur borgið með því að kljúfa sig út úr félaginu. Hann hefur lýst yfir ásetningi um að beita sér fyrir stofnun klofningsfélags í þessum tilgangi. Hann hefur haft þessi ummæli í frammi í opnum hópum á samfélagsmiðlum þar sem fulltrúar atvinnurekenda fjölda Eflingarfélaga eru meðlimir.

Að okkar mati þarf ekki að fjölyrða frekar um hollustu Guðmundar við Eflingu og félagsmenn Eflingar.

Við hvetjum Guðmund til að segja sig úr stjórn Eflingar og láta verða af hugmyndum sínum um stofnun nýs klofnings-stéttarfélags.

Agnieszka Ewa Ziółkowska

Ólöf Helga Adolfsdóttir

Eva Ágústsdóttir

Daníel Örn Arnarsson

Felix Kofi Adjahoe

Innocentia Fiati

Kolbrún Valvesdóttir

Michael Bragi Whalley

Stefán E. Sigurðsson

Zsófía Sidlovits

Jóna Sveinsdóttir“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Flugstjórinn sá eini sem komst lífs af

Flugstjórinn sá eini sem komst lífs af
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Baráttumaðurinn Unnar Karl Halldórsson fallinn frá

Baráttumaðurinn Unnar Karl Halldórsson fallinn frá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð