fbpx
Miðvikudagur 22.janúar 2025
Fréttir

Bannað að gefa sæeyrum tiltekið fóður útaf of háu arsenikinnihaldi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 9. nóvember 2021 17:15

Sæeyru Mynd/Auðlindin.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur staðfest þann úrskurð Matvælastofnunar að banna notkun íslensks hrossaþaramjöls í þurrfóður fyrir sæeyru en mjölið var 10% af innihaldsefnum fóðursins. Ástæðan var sú að í hrossaþaramjölinu var arseninnihald of hátt, en arsen er óæskilegt efni. Þetta kemur fram í frétt á vef MAST.

Stofnunin bannaði ræktanda sæeyrna, sem eru ein tegund sæsnigla, að nota slík mjöl í fóður í mars 2020. Ræktandinn kærði ákvörðun Matvælastofnunar til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og benti á að arsenið þynntist út við framleiðslu fóðursins þannig að arsenið væri innan marka í fullbúnu fóðri.

Þá benti  kærandi einnig á að fóðureftirlit Matvælastofnunar tæki einungis til fóðurs ætlað búfé en sæsnilgarnir væru ekki búfé í hefðbundnum skilningi þess orðs.  Enn fremur lægi fyrir að fyrirtæki í öðrum Evrópulöndum notuðu ferskan hrossaþara sem fóður fyrir sæeyru sem þau fyrirtæki rækta.

Matvælastofnun benti hins vegar á að samkvæmt gildandi reglugerðum væri bannað að þynna út óæskileg efni í fóðri, í þessu tilviki arsen, með öðrum fóðurefnum þannig að lokastyrkur yrði innan við leyfilegt hámark.  Sama bann við þynningu gilti um matvæli.

Stofnunin benti enn fremur á að kærandi skilgreindi búfé of þröngt.  Opinbert eftirlit þyrfti að hafa með fóðri allra dýra sem nýtt væru til manneldis.  Neytendur dýraafurða eru með óbeinum hætti að neyta þess fóðurs sem dýrin eru alin á og öll slík dýr væru því í raun búfé.  Varðandi erlend fyrirtæki þá hefðu ekki verið lögð fram nein gögn sem sýndu fram á arsenmagn í þeim hrossaþara sem þau fyrirtæki notuðust við. Magn af arseni í þara getur verið mismunandi og sums staðar innan marka.  Til að mynda skiptir máli hve mengað umhverfið er þar sem þarinn er tekinn upp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Réðst á lögreglumann hjá bráðamóttökunni

Réðst á lögreglumann hjá bráðamóttökunni
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Dagur kveður borgarstjórn eftir nær aldarfjórðung – „Ég elska Reykjavík“

Dagur kveður borgarstjórn eftir nær aldarfjórðung – „Ég elska Reykjavík“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Gróf pólitísk ritskoðun vekur reiði og vangaveltur um endalok tjáningarfrelsisins – „Eitthvað hræðilegt átti sér stað á meðan við vorum í burtu“

Gróf pólitísk ritskoðun vekur reiði og vangaveltur um endalok tjáningarfrelsisins – „Eitthvað hræðilegt átti sér stað á meðan við vorum í burtu“
Fréttir
Í gær

Guðmundur segir að ósanngjörn umfjöllun RÚV um Trump geti skaðað samskipti við Bandaríkjamenn – „Þessu verður að linna“

Guðmundur segir að ósanngjörn umfjöllun RÚV um Trump geti skaðað samskipti við Bandaríkjamenn – „Þessu verður að linna“
Fréttir
Í gær

Stór sending frá Spáni – Földu kókaín í skóm og nærbuxum

Stór sending frá Spáni – Földu kókaín í skóm og nærbuxum
Fréttir
Í gær

Höggvinn með exi á A. Hansen – Svaraði fyrir sig með hnefunum 20 árum síðar á Castello

Höggvinn með exi á A. Hansen – Svaraði fyrir sig með hnefunum 20 árum síðar á Castello