Feðgar voru saman að keyra á Dalveginum í Kópavogi í gærkvöldi þegar þeir urðu vitni að miklum glæfraakstri. „Óþolinmóður ökumaður (eða bara fáviti) ákveður að taka fram úr okkur á ofsahraða á gatnamótum,“ segir faðirinn í samtali við DV um málið en sonur hans var í æfingaakstri þegar glæfraaksturinn átti sér stað.
„Þarna munaði engu að umræddur fáviti hefði misst vald á bifreið sinni og endasteypst utan vegar með alvarlegum afleiðingum. Þetta er svo algjörlega glórulaus hegðun að það nær engri átt.“
Þrátt fyrir að sonurinn sé ekki ennþá kominn með bílpróf þá brást hann vel við glæfraakstrinum. „Drengurinn var pollrólegur, annað en ég,“ segir faðirinn.
Sem betur fer fór bíllinn ekki í bíl feðganna en það munaði litlu. „Hann sleppur alveg en þetta var mjög tæpt. Þetta gerðist líka svo snöggt, maður tekur ekki eftir þessu fyrr en bíllinn er kominn framhjá.“
Feðgarnir eru með myndavél í bílnum og náðu því myndbandi af glæfraakstrinum. Myndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan: