Veðurfræðingurinn Trausti Jónsson er gestur Sigmundar Ernis í þættinum Mannamál á Hringbraut í kvöld. Í þættinum ræðir Trausti meðal annars um það þegar óhugnanleg flökkusaga um snemmbúið andlát hans gekk á milli landsmanna.
Þegar Trausti hætti sem veðurfréttamaður á RÚV fór flökkusagan um andlátið af stað. Trausti segir í þættinum að kjaftasögur í íslensku samfélagi séu magnaðar og að í þessu tilfelli hafi einhver misskilningur orðið einhvers staðar til.
„Það var svo skrítið, ég vissi eiginlega af þessu fyrir fram, þetta var lengi að gerast,“ segir Trausti en honum fannst dularfullt og óþæginlegt að vita af þessum orðróm áður en hann fór á fullt flug. „Þetta var náttúrulega afskaplega óþægilegt, því þetta gæti auðvitað hafa verið satt.“
Trausti hafði þó ekki miklar áhyggjur af því að orðrómurinn myndi rætast. „Nei, nei. En maður veit það ekki í raun og veru. Maður veit ekkert hvernig er að deyja. Það getur vel verið að það gerist svona.“
Það var þó ekki bara Trausti sem frétti af þessum orðróm, fjölskyldan hans heyrði líka af honum. „Það vildi svo til að systir mín – hún náttúrulega vissi að þetta var ekki satt – fór með dóttur sína til tannlæknis í Reykjavík þennan dag og á leiðinni segir hún dóttur sinni að hún skuli ekki hrökkva við þó að hún heyri talað um þetta á tannlæknastofunni,“ segir Trausti.
Þegar á tannlæknastofuna var komið gerðist það svo að mæðgurnar heyrðu talað um orðróminn. „Þetta var úti um allt.“
Trausti telur að ein ástæðan fyrir orðróminum hafi verið að alnafni hans var á þessum tíma á Landspítalanum og átti við mjög erfiðan sjúkdóm að stríða. Traustarnir tveir áttu báðir heima á Skúlagötu en á mismunandi stöðum.
„Hann dó reyndar ekki fyrr en síðar. Það var eiginlega óþægilegra að heyra hans dánartilkynningu. Ég var þá með lögheimili á Skúlagötu í Borgarnesi og hann á Skúlagötu í Reykjavík.“
Mannamál eru á dagskrá Hringbrautar í kvöld klukkan 19:00. Þátturinn verður endursýndur klukkan 21:00.