fbpx
Mánudagur 20.janúar 2025
Fréttir

Íbúar Rimahverfis anda léttar – Börnin kölluðu hann „perrann í bláa húsinu“

Heimir Hannesson
Fimmtudaginn 28. október 2021 11:56

mynd/samsett DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður á áttræðisaldri fékk á dögunum 12 mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir ítrekuð blygðunarsemisbrot framin á heimili hans, en maðurinn mun hafa staðið í glugga á heimili sínu í Rimahverfinu í Grafarvogi og snert kynfæri sín á meðan hann fylgdist með barnungum drengjum að leik á nærliggjandi leiksvæði.

DV sagði frá málinu í júní í fyrra og ræddi við áhyggjufulla foreldra í hverfinu. „Ég er til í að gera hvað sem er til að þetta hætti og þess vegna er ég að ræða við fjölmiðla,“ sagði einn faðir í Rimahverfinu. Kom þar jafnframt fram að erfitt væri að fæla manninn úr hverfinu þar sem hann ætti íbúðina sjálfur. Lýstu þá jafnframt aðrir foreldrar sem DV ræddu við áhyggjum yfir því að hann færi eitthvað annað. „Draumurinn væri auðvitað að losna við hann úr hverfinu, en þá hugsar maður á móti – hvert fer hann næst? Hann er ekkert endilega betur settur í einhverjum öðrum hverfum,“ sagði annar faðir sem DV ræddi við. „Í fullkomnum heimi ætti bara að loka þennan mann inni. Menn sem bera sig fyrir börnum, þetta eru bara ógeð,“ bætti hann svo síðar við.

Síðasta sumar tóku þá börn úr hverfinu sig til og límdu svarta ruslapoka fyrir gluggana í íbúðinni hans, en hann reif þá niður jafnóðum.

Þá hefur DV heimildir fyrir því að þau skilaboð hafi gengið á milli foreldra í hverfinu að ganga um með símana tilbúna til þess að ná myndbandi af athæfi mannsins, enda hafi lögreglan bent þeim á að best væri að hafa sannanir.

Það virðist hafa skilað sínu, því í dómnum er því lýst hvernig börnin tilkynntu manninn ítrekað til lögreglu. Þá er því lýst hvernig börnin í hverfinu vöruðu hvort annað við manninum. Gekk maðurinn meðal barna í hverfinu undir nafninu „perrinn í bláa húsinu.“

Sjö börn og fjölmargir lögreglumenn í vitnastúku

Teknar voru skýrslur af fjölmörgum börnum fyrir dómi og í Barnahúsi. Sum hver kváðust hafa séð til hans „klóra sér“ að neðan bak við gardínu í glugga íbúðarinnar. Önnur vissu betur hvað var á seyði. Í eitt þau skipta sem lögreglan var kölluð á staðinn kom maðurinn til dyra fáklæddur en sagðist þá hafa verið á stuttbuxum í glugganum að gera æfingar. Í annað skipti virðist lögreglumaðurinn hafa gómað hann í glugganum ber að neðan að fitla við lim sinn við stofugluggann. „Þegar ákærði sá lögreglumanninn hljóp hann með buxurnar á hælunum inn í íbúðina,“ segir í dómnum.

Ákærði játaði þá fyrir lögreglumönnunum að hafa staðið í glugganum og að hafa verið að fitla við lim sinn, en neitaði að hafa verið að horfa á börnin á meðan.

Við meðferð málsins fyrir héraðsdómi var dómkvaddur geðlæknir sem framkvæmdi geðrannsókn á manninum. Segir í dómnum að geðskoðun hafi ekki leitt neitt óeðlilegt í ljós. Maðurinn reyndist samvinnuþýður við skoðunina og sagðist ganga stundum nakinn um heima hjá sér, en neitaði því sem honum væri gefið að sök í dómsmálinu.

Ævintýralegar afsakanir mannsins ótrúverðugar

Ákærði neitaði jafnframt sök fyrir dómi. Sagðist hann ekki muna eftir fyrstu tveimur atvikunum sem hann var ákærður fyrir, en að hann væri stundum léttklæddur heima hjá sér og gerði reglulega heima hjá sér og væri jafnframt léttklæddur á meðan á þeim stæði. Þá kvaðst hann hafa verið illa sofinn í einhver skipti og ekki fundið nærbuxur og farið því nakin fram á baðherbergi íbúðarinnar og gengið fram hjá svaladyrunum á leið sinni þangað.

Í ljósi fjölda vitna auk vitnisburðar lögreglumanna í málinu þóttu flestar útskýringar mannsins á athæfi sínu ótrúverðugar. Aðrar voru hraktar með sönnunum.

Maðurinn hefur þrisvar áður verið dæmdur fyrir samskonar brot, síðast árið 2014. Í ljósi sakaferils mannsins og ítrekaðra brota þótti dóminum hæfilegt að ákvarða 12 mánaða fangelsi. „Með hliðsjón af fjölda tilvika og ítrekuðum brotum ákærða þykir ekki unnt að skilorðsbinda refsinguna,“ sagði jafnframt í dómnum.

Þá var maðurinn dæmdur til þess að greiða lögmanni sínum um 2,2 milljónir og réttargæslumönnum brotaþola sinna annað eins. Þá fær hver brotaþoli mannsins 250 þúsund krónur í miskabætur, en þeir í málinu sjö talsins.

Dóminn má sjá í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Erill á næturvaktinni – Eftirför, átök, innbrot í gám, slagsmál

Erill á næturvaktinni – Eftirför, átök, innbrot í gám, slagsmál
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sælukot kærir Heilbrigðiseftirlitið fyrir „hóflausa beitingu valds“ – Létu loka leikskólanum vegna músagangs

Sælukot kærir Heilbrigðiseftirlitið fyrir „hóflausa beitingu valds“ – Létu loka leikskólanum vegna músagangs
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kristján fengið nóg: „Ónæðið held­ur áfram og byrjaði nú síðast klukk­an 7 í morg­un“

Kristján fengið nóg: „Ónæðið held­ur áfram og byrjaði nú síðast klukk­an 7 í morg­un“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kristinn gagnrýnir hvernig talað er um Palestínumenn – „Smekklegt“

Kristinn gagnrýnir hvernig talað er um Palestínumenn – „Smekklegt“