Steinþór Jónsson, meirihlutaeigandi í Hótel Keflavík, tapaði í morgun máli gegn bróður sínum, Davíð Jónssyni, sem er eigandi að tæplega 20% hlut í hótelrekstrinum, og eiginkonu Davíðs, Evu Dögg Sigurðardóttur. Nánar tiltekið er um að ræða úrskurð Héraðsdóms Reykjaness, þar sem hafnað er kröfu um að sú ákvörðun Sýslumanns á Suðurnesjum, að fallast ekki á kröfu Hótels Keflavíkur um lögbann á komu hjónanna á hótelið verði ógild.
DV fjallaði um þessar deilur þann 14. október og ræddi við hjónin Davíð og Evu, en Steinþór kaus að tjá sig ekki. Steinþór sakar bróður sinn og mágkonu um óviðeigandi háttsemi á hótelinu en hjónin hafna því með öllu. Þau segjast hins vegar hafa orðið fyrir niðurlægjandi framkomu af hálfu starfsfólks, sem hafi að skipun Steinþórs neitað þeim um afgreiðslu.
Í fréttinni sagði: „Næststærsti hluthafinn í rekstri Hótels Keflavíkur, Davíð Jónsson, er í þeirri sérkennilegu stöðu að hann fær ekki afgreiðslu á veitingastað hótelsins. Áður hefur hann mátt þola að vera rekinn úr starfi aðstoðarhótelstjóra og bolað úr stjórn félagsins. Að sögn Davíðs er þetta runnið undan rifjum bróður hans, Steinþórs Jónssonar, sem vilji fara með öll völd í þessu merka fjölskyldufyrirtæki og hagnýta sér eignina á alla lund.“
Undanfarið eitt og hálft ár þá hafa farið fram hlutafjárhækkanir sem Davíð staðhæfir að séu gerðar með það markmið að þynna út hlut hans í fyrirtækinu. Segir hann hlutafjáraukningarnar tilhæfulausar þar sem reksturinn hafi gengið vel. „Ég hef orðið að leggja 20 milljónir í fyrirtækið til að halda mínum eignarhlut í því. Mér er síðan meinað að sitja inni á þessum stað sem hefur verið mitt annað heimili í þrjá áratugi,“ segir Davíð, en hann starfaði fyrir hótelið allar götur frá árinu 1991 og þar til hann var rekinn árið 2018.
Sem fyrr segir hafnaði sýslumaður lögbannskröfunni. Hótel Keflavík kærði þann úrskurð til Héraðsdóms Reykjaness og krafðist þess að hann yrði ógiltur. Dómurinn telur reyndar að sóknaraðili hafi sýnt fram á að „varnaraðilar hafi haft uppi háttsemi sem sé fallin til þess að áreita starfsmenn sóknaraðila og rýra ásýnd rekstrar hans að því marki sem viðskiptavinir verða vitni að þeirri háttsemi ef sannast.“ Hins vegar hafi sóknaraðili ekki sýnt fram á að þau munu halda því áfram. Ekki sé hægt að leggja lögbann við athöfn sem liðin er.
Kröfu um að lagt verði fyrir Sýslumanninn á Suðurnesjum að leggja lögbann á komu hjónanna á Hótel Keflavík er vísað frá dómi.