Flugfélagið PLAY hefur nú bætt við tveimur áfangastöðum á Spáni, Mallorca og Malaga, á sumaráætlun sinni fyrir 2022. Þar með eru áfangastaðir PLAY á Spáni orðnir sex, en nú þegar hefur verið boðið upp á áætlunarflug til Barcelona, Tenerife, Alicante og Gran Canaria.
Flogið verður einu sinni í viku, á miðvikudögum til Palma á Mallorca og á sunnudögum til Malaga. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
„Malaga, heimabær Pablo Picasso, er sólríkasta borg Spánar en þessi fallega hafnarborg við Miðjarðarhafið er mjög vinsæl meðal ferðamanna. Það sama má segja um borgina Palma á paradísareyjunni Mallorca þar sem hreinar strendur, volgur sjór, náttúrufegurð og fallegur arkitektúr lokka til sín ferðamenn.
„Það er óhætt að segja að Íslendingar njóti sín vel á Spáni en frá því PLAY hóf miðasölu varð strax gríðarleg eftirspurn eftir farmiðum til Spánar. Við finnum einnig vel fyrir áhuga Spánverja á að koma til Íslands. Nýju áfangastaðirnir gefa þeim eldri ekkert eftir enda eru þetta sannkallaðar paradísarborgir og við hlökkum til að fljúga sólþyrstum Íslendingum á nýja staði,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY. „