Heilbrigðisráðuneytið eru ekki með skýr viðmið um kostnað vegna hvers hraðprófs og PCR-prófs sem framkvæmd hafa verið á vegum hins opinbera. DV sendi fyrirspurn á ráðuneytið til að spyrja um kostnað vegna hraðprófa annars vegar og hins vegar PCR-prófanna. Ekki er að sjá á svörum ráðuneytisins að það taki sérstaklega saman útgjöld hins opinbera vegna skimunaráætlunar ríkisins, en ljóst er að kostnaðurinn hleypur á milljónum hvern dag.
Ráðuneytið segir að kostnaðurinn sé mismunandi. „Það ræðst m.a. af tegundum, gæðum og magni innkaupa, þ.e. verði frá birgjum. Kostnaður af framkvæmd við töku prófa er breytilegur og skiptir þar miklu hve mörg próf eru tekin á hverjum tíma.“
Í svari var vísað til reglugerðar heilbrigðisráðherra frá því í júní þar sem kveðið var á um að ef einstaklingar uppfylli ekki skilyrði faglegra fyrirmæla landlæknis skuli hann greiða 7 þúsund krónur fyrir PCR-próf eða 4 þúsund krónur fyrir hraðpróf á vegum heilsugæslu. Það svarar þó ekki spurningunni um kostnað við eitt hraðpróf eða eitt PCR-próf.
Í svarinu er þó tekið fram að þessar fjárhæðir sem fram koma í reglugerð – 7.000 fyrir PCR-próf og 4.000 fyrir hraðpróf – eigi að dekka allan kostnað við sýnatöku og próf samkvæmt kostnaðarmati. Hins vegar megi ætla að einkennasýnatökur, sem eru notendum að kostnaðarlausu, kosti hið opinbera nokkuð minna þar sem vist hagræði fylgi umfangi slíkra prófanna.
Um þrjú þúsund sýni eru nú tekin á hverjum degi, og má því gera ráð fyrir því að kostnaður ríkisins vegna skimunar á vegum heilsugæslu og spítala nemi á annan tug milljóna á hverjum degi.
DV spurði einnig hvað ráðuneytið hafi greitt til heilsugæslu og sjúkrahúsa vegna PCR– og hraðprófa síðan 1. mars 2020.
Því gat ráðuneytið heldur ekki svarað og vísaði til þess að slík próf séu talin liður í lögbundinni starfsemi heilbrigðisstofnana sem séu fjármagnaðar með fjárlögum ár hvert og með sérstökum framlögum fjáraukalaga eftir atvikum.
„Aukin útgjöld hins opinbera vegna Covid-19 birtast t.a.m. í fjárlögum þessa árs og einnig í fjáraukalögum. Því er ekki um að ræða sérstakar greiðslur heilbrigðisráðuneytisins til heilsugæslu og Landspítala vegna PCR prófa/hraðprófa en miðað er við að heilbrigðisstofnanir haldi til haga þeim kostnaði sem fellur til sérstaklega vegna Covid-19.“