Icelandair Group skilaði 2,5 milljarða króna (19,6 milljóna dala) hagnaði á þriðja ársfjórðungi 2021 samkvæmt tilkynningu sem félagið birti í Kauphöllinni rétt í þessu.
Mikill uppgangur í fraktflutningum á tímabilinu ræður meðal annars þessari stöðu en Icelandair jók umsvif sín einnig í millilandaflugi. Um þetta segir í tilkynningunni:
„Icelandair hélt áfram að auka umsvif sín í millilandaflugi í fjórðungnum með flug til 34 áfangastaða, 11 í Norður Ameríku og 23 í Evrópu. Heildarfjöldi farþega fjórfaldaðist miðað við þriðja ársfjórðung í fyrra og nam 700 þúsund. Þar af voru ferðamenn til Íslands um 52%. Sætanýting var 68,2% og stundvísi 86%. Í innanlandsflugi hefur farþegafjöldi þegar náð því sem hann var fyrir Covid og voru farþegar um 67 þúsund á fjórðungnum.
Mikill uppgangur hefur verið í fraktflutningum og á þriðja ársfjórðungi skilaði Icelandair Cargo hærri tekjum og flutningsmagn var meira en fyrir Covid faraldurinn. Fraktflutningar milli Evrópu og Norður Ameríku jukust töluvert á fjórðungnum og voru um 10% af heildarflutningum samanborið við 3% á árinu 2020.
Eftir aukningu í bókunum fyrri hluta sumars, hægði á bókunum í ágúst og september vegna áhrifa Delta afbrigðisins. Aðstæður hafa batnað á ný og hefur bókunarflæði verið sterkt undanfarnar vikur. Opnun Bandaríkjanna fyrir evrópska ferðamenn er mjög jákvætt skref í áframhaldandi uppbyggingu félagsins þar sem allir markaðir þess verða opnir í kjölfarið. Flugframboð félagsins á þriðja ársfjórðungi var um 50% af framboði félagsins á sama tíma 2019. Í fjórða ársfjórðungi mun félagið auka framboð sitt í um 65% af framboðinu 2019 og fljúga til 11 áfangastaða í Norður Ameríku og 15 í Evrópu. Áhrifa heimsfaraldursins og tilheyrandi ferðatakmarkana mun þó halda áfram að gæta og hátt eldsneytisverð mun hafa neikvæð áhrif á afkomu félagsins í fjórða ársfjórðungi.“
Bogi Nils Bogason forstóri segir ánægjulegt að Icelandair skili núna hagnaði í fyrsta sinn í tvö ár:
„Við þrefölduðum flugframboð í millilandaflugi á milli ára og nam framboðið um 50% af framboði sama tímabils 2019 sem er mjög góður árangur í ljósi krefjandi aðstæðna. Sætanýting var góð í júlí og ágúst og við fluttum fleiri farþega í júlímánuði en fyrstu sex mánuði ársins samanlagt. Þá tók flug yfir Atlantshafið verulega við sér þegar Evrópa opnaði á ferðalög fyrir bandaríska ferðamenn. Við erum stolt af því að hafa náð 86% stundvísi í fjórðungnum þrátt fyrir flóknar ferðatakmarkanir og mikla aukningu í flugi á stuttum tíma. Ástæða þessa árangurs er fyrst og fremst sá sveigjanleiki sem félagið býr yfir – bæði leiðakerfisins og ekki síður starfsfólks okkar sem ég vil þakka fyrir frábæra frammistöðu, úthald og útsjónarsemi við að bregðast hratt við breytingum á mörkuðum okkar og koma auga á öll möguleg tækifæri.“
Þrátt fyrir að Icelandair sé á réttri leið hafði Covid-faraldurinn mikil áhrif á starfsemi félagsins, segir Bogi. Bókunarstaða næstu mánuði er hins vegar góð:
„Þrátt fyrir að við séum á réttri leið, hélt heimsfaraldurinn áfram að hafa áhrif á á starfsemi félagsins. Útbreiðsla Delta afbrigðisins hægði á bókunum í lok fjórðungsins en þær hafa nú aftur tekið við sér. Eftirspurn eftir frakflutningum var áfram sterk. Icelandair Cargo sérhæfir sig meðal annars í flutningi á ferskum íslenskum fiski og styður þannig við þá mikilvægu útflutningsgrein okkar Íslendinga. Við nýtum öflugt leiðakerfi okkar til þess að koma ferskum fiskafurðum á fjölbreytta markaði beggja vegna Atlantshafsins og á disk neytandans á innan við 48 tímum en þessar vörur eru jafnframt með lágt kolefnisfótspor samanborið við aðra próteingjafa.
Bókunarstaða félagsins er góð næstu mánuði og opnun landamæra í Bandaríkjunum þýðir að við getum farið að nýta leiðakerfi félagsins til fulls í fyrsta skipti síðan í mars 2020. Það er mikilvægt fyrir endurreisn ferðaþjónustunnar á Íslandi að við tryggjum samkeppnishæfni Íslands sem ferðamannalands. Lykilþáttur í því er að íslensk stjórnvöld tryggi að þær ferðatakmarkanir sem eru í gildi á landamærum hér á landi séu einfaldar, ferlið sé skilvirkt og í samræmi við þær reglur sem gilda í löndunum í kringum okkur. Við hjá Icelandair erum vel í stakk búin til að grípa þau tækifæri sem munu gefast á næstu mánuðum með öfluga innviði, sterka lausafjárstöðu, reynslumikið starfsfólk og með því að nýta þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir.“
Vefstreymi á kynningu á uppgjöri þriðja ársfjórðungs verður fimmtudaginn 21. október kl. 8:30 og er það aðgengilegt á heimasíðu Icelandair Group. Þar munu Bogi Nils Bogason forstjóri og Ívar S. Kristinsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs kynna rekstrarniðurstöður og svara spurningum.