fbpx
Sunnudagur 19.janúar 2025
Fréttir

Magnús Ólafur Garðarsson úrskurðaður persónulega gjaldþrota í Danmörku

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 19. október 2021 10:00

Magnús Ólafur Garðarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Magnús Ólafur Garðarsson, stofnandi og fyrrum stjórnanda United Silicon, hefur verið úrskurðaður persónulega gjaldþrota í Danmörku. Þetta kemur fram í tilkynningu í Lögbirtingublaðinu í dag. Preben Jakobsen, sem er með skrifstofu hjá lögmannsstofunni Gorrissen Federspiel, hafi  verið skipaður skiptastjóri þrotabúsins en einnig er tekið fram að dómsúrskurður um gjaldþrot Magnúsar Ólafs nær einnig til eigna hans á Íslandi og í öðrum norrænum ríkjum.

Eins og alþjóð veit var Magnús Ólafur maðurinn á bak við ris og og fall sílikonverksmiðju United Silicon. Gefnar hafa verið út þrjár stefnur á hendur honum vegna meintra fjársvika en í heildina eru þau talin nema um 1,8 milljarð króna.

Magnúsi Ólafi er gefið að sök að hafa stofnað erlent gerviverktökufélag til að draga sér fé, falsað reikninga til að dylja brot sín, brotið gegn lögum um bókhald og ársreikninga og gert tilraun til að villa um fyrir skiptastjóra. Í bland við auðgunarbrotin, sem enn eru til meðferðar innan dómskerfisins, hefur Magnús verið dæmdur fyrir ofsaakstur á Teslu-bifreið sinni með þeim afleiðingum að annar bíll endaði utanvegar og ökumaður slasaðist.

Rann­sókn héraðssak­sókn­ara á hinum meintu svikum frumkvöðulsins  hefur staðið yfir í tæplega fjögur ár en hún fór af stað  í sept­em­ber árið 2017 eft­ir að stjórn fé­lags­ins sendi kæru til embætt­is­ins. Í framhaldi tók Arion banki og fimm líf­eyr­is­sjóðir yfir starf­semi kís­il­vers­ins.

Sjá einnig: Fjársvikin tala nema um 1,8 milljarði króna

Magnús Ólafur hefur undanfarin ár átt einbýlishús við Huldu­braut í Kópa­vogi.  Húsið er 360 fm að stærð og hefur Magnús haft talsverðar tekjur á að leigja húsið út, meðal annars í gegnum Airbnb. Á dögunum var greint frá því að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi gefið Arion banka grænt ljóst á að krefjast fjárnáms í fasteigninni í mars en bankinn hefur freistað þess að fá greidda skuld félags í meirihlutaeigu Magnúsar upp á tæpar fimm milljónir króna. Magnús reyndist að verjast fjárnámskröfunni með kjafti og klóm en að endingu laut hann í lægra haldi og þurfti að greiða 900 þúsund krónur í málskostnað.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úkraínsku hermennirnir voru í þjálfun í Frakklandi – Skyndilega hurfu þeir

Úkraínsku hermennirnir voru í þjálfun í Frakklandi – Skyndilega hurfu þeir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ofsótti lesbískt par linnulítið í hálft ár – Brjálaðist vegna beiðni um að þrífa upp hundaskít

Ofsótti lesbískt par linnulítið í hálft ár – Brjálaðist vegna beiðni um að þrífa upp hundaskít
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ragnheiður skoðaði íbúð á föstudegi en á mánudegi var búið að selja hana – „Og hverjum haldið þið?“

Ragnheiður skoðaði íbúð á föstudegi en á mánudegi var búið að selja hana – „Og hverjum haldið þið?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Álftnesingur réðst á lögreglumann í Valsheimilinu

Álftnesingur réðst á lögreglumann í Valsheimilinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tvíburasynir Rannveigar og Birgis Þórs fæddust eftir 25 vikna meðgöngu – „Við þurfum að vera til staðar fyrir litlu hetjurnar“

Tvíburasynir Rannveigar og Birgis Þórs fæddust eftir 25 vikna meðgöngu – „Við þurfum að vera til staðar fyrir litlu hetjurnar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Davíð – „Gervigreindin að minnsta kosti var með það á hreinu og skilaði því svari að Ísland hefði slitið viðræðunum“

Sigmundur Davíð – „Gervigreindin að minnsta kosti var með það á hreinu og skilaði því svari að Ísland hefði slitið viðræðunum“