fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Sævar var útilokaður frá eigin fjölskyldu – Þurfti að „læðast í felum“ í jarðarför föður síns

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 18. október 2021 12:30

Sævar Þór Jónsson - Mynd: Sævar Þór/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Skiptar skoðanir hafa verið uppi um málefni KSÍ og ekki auðvelt að greina rétt frá röngu. Margir kollegar mínir hafa séð sig knúna til að deila skoðunum sínum á málinu og hafa réttilega bent á margar grunnstoðir réttarríkisins.“

Svona hefst pistill sem lögmaðurinn Sævar Þór Jónsson skrifar en pistillinn birtist á Vísi. Sævar segir að sem lögmaður deilir hann reynslu með kollegum sínum þar sem skjólstæðingar hans hafa verið ásakaðir um brot sem ekki var fótur fyrir. Hann segist því skilja vel sjónarmið kollega sinna en hann segir að rök þeirra snerti hins vegar ekki á rót vandans.

„Það sem gleymist í þessu er ástæða þess að þolendur kynferðisbrota opinbera ásakanir sínar,“ segir Sævar. „Staðreyndin er sú, þrátt fyrir alla vitundarvakninguna, að enn ríkir mikil þöggunarmenning innan samfélagsins um kynferðisbrot. Að stíga fram og skila skömminni, eins og sagt er, er ekki eins auðvelt og stundum er látið í veðri vaka. Það eitt að koma opinberlega fram og viðurkenna að hafa orðið fórnarlamb kynferðisofbeldis er mjög erfitt.“

Sævar útskýrir þá nánar hvers vegna það getur verið erfitt að stíga fram og opinbera slíkt ofbeldi. „Óttinn við útskúfun og ekki vera tekinn trúanlegur. Því miður heyrast enn þessar umkvartanir þolenda um réttarvörslukerfið. Það er ekki lengra síðan en 2018 að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að viðurkenna mistök við afgreiðslu kæru í kynferðisbroti ungs brotaþola en undirritaður var lögmaður hans.“

Þá segir Sævar að þolandinn sem um ræðir hafi þurft að líða mikið sinnuleysi af hendi lögreglu við afgreiðslu kæru hans. „Það sem kemur mörgum á óvart er að oft eru það þeir sem standa þolandanum næst sem eru minnst undir það búnir að fjalla um og jafnvel viðurkenna kynferðisbrotið. Skömmin er svo greypt í huga og hjörtu fólks og enn er langt í land að breyta því.“

Hann segir að þetta sé hinn undirliggjandi vandi í samfélaginu og að hans mati sé þetta rót vandans í KSÍ málinu. „Umræðan hefur snúist óþarflega mikið um að gagnrýna og jafnvel gera lítið úr þeim sem stigið hafa fram í stað þess að reyna að skilja um hvað málið snýst í raun og veru. Þetta endurspeglar því miður samfélag okkar að töluverðu leyti hvað viðkemur kynferðisbrotamálum. Þolendur kynferðisbrota upplifa útilokun og tortyggni, og það á ekki bara við um réttarvörslukerfið heldur á öllum sviðum samfélagsins.“

„Sá sem ekki fær viðurkenningu heima fyrir leitar að henni annars staðar“

Sævar hefur sjálfur komið opinberlega fram og sagt frá kynferðislegu ofbeldi sem hann varð fyrir í æsku. Það tók hann mjög mörg ár að vinna sig út úr því, það eitt að stíga fram og segja frá brotinu var mikil þolraun en alls ekki sú eina.

Í pistlinum segir Sævar frá því hvernig fjölskyldan hans brást við þegar hann sagði þeim frá því sem hafði gerst. „Ég þurfti líka að takast á við fjölskylduna mína sem var í algerri afneitun. Oft eru aðstandendur þolenda þjakaðir af sjálfsásökun og annarri vanlíðan sem tengist slíkri opinberun. En afneitunin byggir líka á úreldum samfélagslegum gildum sem enn eimir mikið af í samfélaginu,“ segir hann.

„Það er þessi afneitun, þessi þöggun og tortryggni sem mætir mörgum þolendum sem ýtir frekar undir þörf þeirra til þess að opinbera brotin enn frekar. Sá sem ekki fær viðurkenningu heima fyrir leitar að henni annars staðar. Það er ekki hægt að horfa áfram hjá þessum staðreyndum. Mikilvægi þess að fjalla um þessi mál hefur ekkert með annarlegar hvatir að gera heldur er tilgangurinn að fá samfélagið í heild sinni til að taka á málum þannig að það skili sér á sem víðustum grunni, innan veggja heimilanna, stofnanna og réttarvörslukerfisins og að fólk taka á málefnum þolenda kynferðisbrota þannig að unnið sé markvisst í málaflokknum en ekki reyna að þagga það niður eða drepa umræðunni á dreif.“

„Kostaði mig útilokun frá eigin fjölskyldu“

Sævar talar um þá leið sem hann fór til að fá söguna sína um ofbeldið viðurkennda. „Ég fór þá leið að skrifa mig frá vandanum og gaf út bók þar sem ég opinberaði mína þrautagöngu. Það var mín leið til þess að saga mín yrði loks viðurkennd,“ segir hann en leiðin reyndist dýrkeypt.

„Það kostaði mig útilokun frá eigin fjölskyldu. Var það þess virði eða hefði ég átti hreinlega að bíða með þetta, hlífa mínu fólki? Faðir minn lést án þess að vilja nokkurn tíma ræða þessi mál við mig. Fjölskyldan meinaði mér meira að segja að kveðja hann og presturinn sem jarðsöng vildi ekki skipta sér af þessu og lét þau ráða. Það virtist vera of erfitt fyrir prestinn að virði rétt minn til að fá að vera viðstaddur jarðarför föður míns. Ég mátti heimsækja kistuna í laumi, læðast í felum eins og skítuga barnið.“

Sævar segir að svarið við þessari spurningu sé auðvitað nei. „En þetta er dæmi um hvernig það er að vera í samfélagi sem talar um skilning en praktiserar það ekki. Það er því ekki að furða að fólk kom fram opinberlega til að tala um þessi málefni því annars verða engar breytingar og það breytir engu í hvernig réttaríki við lifum,“ segir hann og nefnir svo rannsóknir sem gerðar voru í Bretlandi.

„Í Bretalandi hafa verið gerðar rannsóknir um málefni sem snúa að sundrung fjölskyldna og er talið að í Stóra-Bretlandi sé 8% þjóðarinnar eða rúmlega 5 milljónir einstaklinga sem koma frá sundruðum fjölskyldum vegna áfalla innan fjölskyldna, eins og t.d. kynferðisbrota. Eigi sama hlutfall við hér á landi þá eru um 29 þúsund Íslendingar í þessum sporum. “

Að lokum segir Sævar að það sé full ástæða til að tala um þessi mál. „Það er því full ástæða til að vekja máls á þessu og leggjast á árarnar til að vinna á þessu tabúi og fordómum sem enn finnast gagnvart þolendum kynferðisbrota.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi
Fréttir
Í gær

Raðmorðingi játar á sig morð 42 kvenna á tveimur árum

Raðmorðingi játar á sig morð 42 kvenna á tveimur árum
Fréttir
Í gær

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti
Fréttir
Í gær

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi
Fréttir
Í gær

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði