Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) hefur nú sett alls 138 fyrirtæki á svokallaðan útilokunarlista og þegar hafa verið seldar eignir að virði rúmlega þriggja milljarða króna úr eignasöfnum LV vegna þessa. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
„Ástæðan er að starfsemi fyrirtækjanna uppfyllir ekki skilyrði um sjálfbærni og ábyrgar fjárfestingar samkvæmt nýrri heildarstefnu stjórnar LV um ábyrgar fjárfestingar“
Stefna LV um útilokun felur í sér að fyrirtæki sem framleiða tilteknar vörur eða teljast brotleg við tiltekin alþjóðleg viðmið um mannréttindi og viðskiptasiðferði eru skráð á útilokunarlista og er liður í stefnumótum sjóðsins um ábyrgar fjárfestingar. Við útilokun er meðal annars litið til fyrirmynda frá leiðandi lífeyrissjóðum á Norðurlöndum.
„Á grundvelli stefnunnar hefur LV þegar sett 138 fyrirtæki á útilokunarlista; 88 fyrirtæki sem vinna kol, olíusand og olíuleir, 13 fyrirtæki í tóbaksframleiðslu, 22 fyrirtæki sem framleiða umdeild vopn (e. controversial weapons) og 15 fyrirtæki sem teljast brjóta gegn „UN Global Compalt„.“
Útilokunin varðar útilokun fjárfestingakosta úr eignasöfnum LV, það er fjárfestingar í tiltekinni starfsemi sem samræmast ekki skilgreindum viðmiðum eru útilokaðar hjá sjóðnum. Þannig er útilokað að verðbréf úr eignasafni LV séu gefin út af fyrirtæki eða opinberum aðila sem hefur tekjur af starfsemi eða gerist brotlegur við ákvæði tiltekinna alþjóðasáttmála.
Meðal fyrirtækja sem má finna á listanum eru eftirfarandi fyrirtæki:
Airbus SE – fyrir aðkomu að framleiðslu kjarnorkuvopna
General Electric Company – fyrir aðkomu að framleiðslu kjarnavopna
Rolls–Royce Holdings Plc – fyrir aðkomu að framleiðslu kjarnavopna
The Boeing Company – fyrir aðkomu að framleiðslu kjarnavopna
British American Tobacco P.L.C. – fyrir framleiðslu tóbaks
Philip Morris International Inc – fyrir framleiðslu tóbaks
American Electric Power Company Inc – fyrir orkuframleiðslu frá kolum til hitunar
Bayer Aktiengesellschaft – fyrir brot á alþjóðasamningum