fbpx
Fimmtudagur 21.nóvember 2024
Fréttir

María fagnar dómi yfir Heiðari Má fyrir hótanir í hennar garð – Bíður niðurstöðu MDE

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 22. september 2021 07:59

Landsréttur. Mynd: Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

María Sjafnar Árnadóttir fagnar dómi Landsréttar í máli hennar gegn Heiðari Má Sigurlaugssyni, fyrrum sambýlismanni hennar, en dómur var kveðinn upp á föstudaginn. Heiðar Már var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða Maríu 300.000 krónur í miskabætur. Hann þarf einnig að greiða 300.000 krónur í málskostnað og allan áfrýjunarkostnað málsins sem er rúmlega 850.000 krónur. Hann var sakfelldur fyrir hótanir í garð Maríu.

Fréttablaðið skýrir frá þessu. Haft er eftir Maríu að það sé mjög góð tilfinning að hafa unnið málið. Nú hafi hluti réttlætisins náð fram að ganga en tvö fyrri brot, sem hún kærði Heiðar fyrir, fyrndust á meðan rannsókn lögreglunnar stóð yfir. „Þetta er náttúrlega bara fyrst og fremst léttir og viðurkenning á að það hafi verið brotið gegn mér, þannig að það er gríðarlega mikil ró að vera búin að klára þetta eftir fjögurra ára baráttu. Maður hefur þessa tilfinningu að ég náði réttlætinu að hluta til. Ég náði því náttúrlega ekki að öllu leyti, en það er rosalegur léttir eftir fjögurra ára streð,“ sagði María.

Að sögn Maríu hótaði Heiðar Már að senda nektarmyndir af henni til vinnuveitenda hennar. Í dómi Landsréttar er litið til þess að brot Heiðars Más beindust gegn fyrrverandi sambýliskonu hans. Við mat á upphæð miskabóta var horft til þess að brotin földu í sér brot gegn friði og persónu hennar sem gátu verið til þess fallin að vekja hjá henni ótta um velferð sína.

María er meðal níu kvenna sem hafa kært íslenska ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu fyrir að hafa brotið á rétti þeirra til réttlátrar málsmeðferðar. María kærði til lögreglu  í desember 2017 þrjú ofbeldisbrot sem hún kveðst hafa orðið fyrir af hendi Heiðars Más. Um tvær meintar líkamsárásir, sem áttu sér stað í febrúar og júlí 2016, var að ræða og hótun sem barst henni í maí 2017. Hótunina setti Heiðar Már fram eftir að hann komst að því að María ætlaði að kæra ofbeldið.

Líkamsárásarbrotin fyrndust á meðan á rannsókn lögreglunnar stóð vegna þess að lögreglunni láðist að kynna sakborningi sakarefnin en það varð til þess að málið var fellt niður og fór ekki fyrir dóm. María bíður nú niðurstöðu Mannréttindadómstólsins en ríkið hefur fengið frest fram í október til að skila inn athugasemdum vegna málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Læknar tjá sig um „skelfileg skrif“ Áslaugar og saka hana um fáfræði og vanþekkingu – „Fyrst og fremst bruðl með ríkisfé“ 

Læknar tjá sig um „skelfileg skrif“ Áslaugar og saka hana um fáfræði og vanþekkingu – „Fyrst og fremst bruðl með ríkisfé“ 
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Vilhjálmur bendir á hvað vaxtahækkun Íslandsbanka þýðir fyrir 45 milljóna króna lán

Vilhjálmur bendir á hvað vaxtahækkun Íslandsbanka þýðir fyrir 45 milljóna króna lán
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Kröfur í bú veitingastaðarins Héðins reyndust mun meiri en áður var talið

Kröfur í bú veitingastaðarins Héðins reyndust mun meiri en áður var talið
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Gosið fór yfir Grindavíkurveg í nótt – Fer 300 metra á klukkustund

Gosið fór yfir Grindavíkurveg í nótt – Fer 300 metra á klukkustund
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Er þriðja heimsstyrjöldin í uppsiglingu? Hvað segja sérfræðingar?

Er þriðja heimsstyrjöldin í uppsiglingu? Hvað segja sérfræðingar?
Fréttir
Í gær

Enn fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt

Enn fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt
Fréttir
Í gær

Reykjavíkurborg gafst upp á nágrannadeilum í Grafarholti

Reykjavíkurborg gafst upp á nágrannadeilum í Grafarholti