Birkir Jón Jónsson, formaður bæjarráðs í Kópavogi, hefur óskað eftir tímabundnu leyfi frá störfum fyrir bæjarfélagið. Beiðni hans var tekin fyrir á bæjarstjórnarfundi í Kópavogi í gær en þar var nafn Birkis Jóns ekki gefið upp. Samkvæmt vef Stundarinnar er um Birki Jón að ræða.
Í samtali við miðilinn segir Birkir Jón að um veikindaleyfi sé að ræða og óvíst sé hvenær hann snúi til starfa að nýju.
Birkir Jón var um langt skeið stjórnarformaður Sorpu en þá gegnir hann einnig stjórnarformennsku í RARIK. Það gustaði duglega um hann í fyrra embættinu enda hefur rekstur Sorpu og sérstaklega bygging 6 milljarða gas- og jarðgerðarstöðvar, GAJU, vera að breytast í einhverskonar skattgreiðenda harmleik.
Birkir Jón steig til hliðar sem stjórnarformaður Sorpu um mitt sumar 2020 en við keflinu tók Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri-Grænna. Birkir Jón situr þó áfram sem óbreyttur stjórnarmaður.
Í morgun gaf Sorpa síðan út tilkynningu um að myglugró hafi greinst í límstréseiningum í þaki og burðarvirki GAJU, gas- og jarðgerðarstöð SORPU. Samkvæmt tilkynningu frá SORPU uppgötvuðust gróin í ágúst og hefur fullvinnsla á lífrænum úrgangi í moltu hefur verið stöðvuð tímabundið af þeim sökum. Í tilkynningunni er haft eftir Líf Magneudóttur, stjórnarformanni SORPU, að myglugróin veki upp spurningar um hvernig staðið var að hönnun og efnisvali húsnæðisins.