Jesper Rubow, saksóknari hjá lögreglunni á Austur-Jótlandi, hefur birt Flemming ákæru vegna málsins og er DV með afrit af ákærunni undir höndum. Í henni kemur fram að ákæruvaldið fer fram á að Flemming verði dæmdur í ævilangt fangelsi en til vara til ótímabundinnar vistunar í fangelsi samkvæmt 70. grein hegningarlaganna.
Nánar tiltekið segir í ákærunni að Flemming sé ákærður fyrir eftirtalin brot:
„Brot 1 – brot gegn 237. grein hegningarlaganna fyrir að hafa þann 29. janúar kyrkt Freyju á heimili hennar í Malling. Brot 2 – brot gegn 139. grein hegningarlaganna með því að hafa þann 29. janúar og dagana þar á eftir að hafa sagað líkið í sundur með sög á heimili Freyju í Malling og að hafa síðan grafið líkamshlutana í garðinum.“
Einnig kemur fram að krafa sé gerð um bætur og er þá væntanlega átt við að börn Freyju og Flemming, þau eiga tvö börn saman, geri bótakröfu í málinu.
Saksóknari krefst þess einnig að samkvæmt 48. grein erfðalaga verði Flemming sviptur erfðarétti, rétti til greiðslu líftrygginga, lífeyris eða annarra réttinda sem tengjast andláti Freyju. Saksóknari gerir einnig kröfu um að nokkrar sagir verði gerðar upptækar til ríkisins.
Ekstra Bladet hefur eftir Rubow að refsikröfurnar sem hann gerir í málinu séu þær þyngstu sem hægt er að gera í Danmörku og að hann muni krefjast þess að Flemming verði dæmdur í ævilangt fangelsi. Ástæðan er að Flemming myrti barnsmóður sína árið 1995 á hrottalegan hátt en hann stakk hana að minnsta kosti 18 sinnum. Hann var dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir það morð. Venjan er sú að krefjast ævilangs fangelsis í Danmörku ef ákærðir hafa myrt fleiri en einn eða oftar en einu sinni.
Flemming viðurkenndi að hafa orðið Freyju að bana þegar hann var færður fyrir dómara þegar krafa lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir honum var tekin fyrir í febrúar. Reiknað er með að hann játi einnig morðið þegar málið verður tekið fyrir hjá undirrétti.