fbpx
Fimmtudagur 25.júlí 2024
Fréttir

Sakar Guðna Bergs um lygar – „Auðvitað vissu Guðni og forysta KSÍ af umræddu kynferðisofbeldi“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Fimmtudaginn 19. ágúst 2021 10:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, framhaldsskólakennari, ritaði á föstudaginn harðorða grein þar sem hún sakaði Knattspyrnusamband Íslands um kvenfyrirlitningu og hélt því fram að landsliðsmenn í knattspyrnu hafi gerst sekir um kynferðisleg- og heimilisofbeldi. Hún sagði þöggunina algjöra og sagði KSÍ bera ábyrgð á henni.

Sjá einnig: Segir þekkta landsliðsmenn hafa komist upp með nauðgun hjá KSÍ

KSÍ svaraði greininni á þriðjudag þar sem þeir vísuðu ásökununum á bug og neituðu því að sambandið legði stund á það að þagga niður ofbeldismál eða að það hylmi yfir með gerendum.

Sjá einnig: Svara þungum ásökunum og hafna því að hylma yfir með gerendum:„Dylgjum um slíkt er alfarið vísað á bug“

Nú hefur Hanna svarað yfirlýsingu KSÍ með liðsinni meðlima úr aðgerðarhópnum Öfgum sem og aktívistum úr hópnum aktívistar gegn nauðgunarmenningu. Svar Hönnu birtist hjá Vísi.

KSÍ varpar frá sér allri ábyrgð

„Vönduð forysta er auðmjúk, hugrökk, horfist í augu við eigin mistök, með skýra sýn á markmið, ábyrg, trúverðug, traust, með gott siðvit og tilfinningagreind,“ segir í pistlinum. Vísar er til yfirlýsingar KSÍ frá því á þriðjudag þar sem KSÍ kallar málflutning í fyrri grein Hönnu dylgjur.

„KSÍ varpar frá sér allri ábyrgð í yfirlýsingu sinni kallar málflutning minn ,,dylgjur”. Þetta er áhugavert í ljósi þess að þolendur kynferðisofbeldis eru gjarnan sagðir með dylgjur þegar þeir stíga fram og segja frá ofbeldinu. KSÍ hvorki svarar fréttafólki né sýnir minnsta áhuga á að vita yfir hvað upplýsingum ég bý yfir um ofbeldi af hálfu landsliðsmanna. Gefur þess í stað út einhliða yfirlýsingu um að það séu dylgjur að halda því fram.“

Kaldar kveðjur til þolenda

Hanna spyr hversu kaldar kveðjurnar geti verið til þolenda en í yfirlýsingu KSÍ sé í engu vikið til þeirra.

„Ekki snefill af samkennd eða skilningi. Skeytingarleysið er algert. KSÍ sýnir engan vilja til að axla ábyrgð, enga auðmýkt, samkennd, tengsl við raunveruleikann og sannleikann.“

Segir Guðna hafa sagt ósatt í yfirlýsingu

Hanna telur það ljóst að Guðni Bergsson, formaður KSÍ og forysta félagsins hafi vitað af umræddu kynferðiofbeldi. Hún hafi fengið fjölda símtala og skilaboða sem staðfesti það.

„Auðvitað vissu Guðni og forysta KSÍ af umræddu kynferðisofbeldi. Það eru of mörg sem vita að Guðni segir ósatt í yfirlýsingunni til að unnt sé að halda öðru fram. Frá því að greinin mín um KSÍ og kvenfyrirlitningu birtist sl. föstudag hefur rignt yfir mig skilaboðum og símtölum. Öll á einn veg; stuðningur, hvatning og staðfestingar um ofbeldi af því tagi sem er tíundað í greininni. Eina undantekningin var aðili sem hafði áhyggjur af því að allt landsliðið lægi undir grun. Þar er þó hvorki við mig né þolendur að sakast heldur KSÍ sem þegir og gerendur sem hafa fengið tækifæri til að stíga fram og axla ábyrgð, en ekki gert.“

Sorgleg viðbrögð

Hanna spyr hvort að stjórnvöld ætli að sætta sig við afstöðu KSÍ í málinu og spyr sérstaklega hvað ráðherra íþróttamála, Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra segi um þetta.

„Í mínum huga eru viðbrögð KSÍ sorgleg. Börn og ungmenni eiga meira skilið en að alast upp við það gildi og menningu að ofbeldi sé ekki ámælisvert. Að fyrirmyndir þeirra og átrúnaðargoð séu ofbeldismenn og enginn geri neitt í því. Það er hörmulegt og hættulegt.“

Misréttið, ofbeldið og kúgunin heldur áfram

Hanna segir að KSÍ þurfi að taka gerendur ofbeldis úr landsliðinu.

„Ef KSÍ ætlar að halda því fram að það sé ekki hægt, má benda á leið Borgarleikhússins í sambærilegum aðstæðum. Þar var staðið með þolendum. Annað hvort stendur KSÍ með þolendum eða ekki. Sýndarjafnrétti dugar ekki. Ef samfélagið lætur þessi viðbrögð KSI óátalin þá er erum við ekki tilbúin til að uppræta kynferðislegt ofbeldi gegn konum og öðrum kynjum. Misréttið, ofbeldið og kúgunin heldur áfram.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Flugstjórinn sá eini sem komst lífs af

Flugstjórinn sá eini sem komst lífs af
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Baráttumaðurinn Unnar Karl Halldórsson fallinn frá

Baráttumaðurinn Unnar Karl Halldórsson fallinn frá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur

Fjölskyldufaðir ósáttur við að vera kallaður flugdólgur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar

Gleðifréttir fyrir líffæraþega – Sjúkratryggingar Íslands munu greiða allan kostnað við bólusetningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð