Morgunblaðið hefur þetta eftir Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu.
Byrjað var að bólusetja barnshafandi konur 29. júlí og hafa um 500 konur þegið bólusetningu til þessa. „Ég held að það sé nokkuð gott hlutfall miðað við að það eru um 2.500 til 3.000 fæðingar á höfuðborgarsvæðinu á hverju ári. Svo spilar alveg inn í að við vildum ekki bólusetja konur sem eru á fyrsta þriðjungi meðgöngunnar. Þá voru einhverjar sem voru búnar að láta bólusetja sig og aðrar sem eiga enn þá eftir að koma. Þær koma bara til okkar þegar þær eru búnar að eiga eða þegar hentar þeim. Það er alltaf opið hús fyrir þær,“ er haft eftir henni.
Verið er að endurbólusetja skólastarfsfólk en sú vinna hófst strax eftir verslunarmannahelgi og verður reynt að ljúka því verkefni sem fyrst að sögn Ragnheiðar.
Á mánudaginn verður byrjað að endurbólsetja þá sem fengu bóluefnið frá Janssen en það eru rúmlega 53.000 manns. Þeim stendur til boða að fá örvunarskammt af Moderna eða Pfizer.
12-15 ára börn verða bólusett í Laugardalshöll 24. og 25. ágúst.
86,3% fólks, eldra en 16 ára, hefur lokið bólusetningu hér á landi og 6,6% hafa fengið einn skammt. Það eru því rúmlega 7% sem eru óbólusett.