fbpx
Sunnudagur 29.desember 2024
Fréttir

Erla Björg tekur við af Þóri – „Mikill heiður“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 9. ágúst 2021 10:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erla Björg Gunnarsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar og tekur við starfinu af Þóri Guðmundssyni. Kolbeinn Tumi Daðason verður fréttastjóri allra miðla fréttastofunnar en hann hefur verið fréttastjóri Vísis síðustu sjö ár.

Samkvæmt Þórhalli Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjölmiðla Stöðvar 2 og Vodafone, hefur markvisst verið unnið að því að sameina fréttamiðla fréttastofunnar og stendur til að efla þá enn frekar.

Í tilkynningu er haft eftir Þórhalli:

„Á fréttastofunni starfar einstakur hópur fagfólks sem þau Erla Björg og Kolbeinn Tumi munu leiða. Þeirra hlutverk er að móta áherslur og fréttaflutning miðla okkar til framtíðar. Ég ber mikið traust til þeirra enda eru þau afburða fréttamenn og öflugir stjórnendur. Ég er þakklátur Þóri Guðmundssyni fyrir hans góða starf enda hefur hann leitt fréttastofuna í tæp fjögur ár með sinni miklu reynslu og þekkingu. Hann sýndi styrk sinn þegar sú ákvörðun var tekin fyrr á þessu ári að setja kvöldfréttir Stöðvar 2 í áskrift. Sú aðgerð heppnaðist einstaklega vel með mikilli fjölgun áskrifenda og styrkti þannig rekstrargrundvöll fréttastofunnar.“

Erla Björg hefur verið fréttamaður Stöðvar 2 í fimm ár og fréttastjóri í tvö. Hún hefur einnig verið umsjónarmaður fréttaskýringarþáttarins Kompáss og hlaut blaðamannaverðlaunin á síðasta ári ásamt öðrum í Kompás fyrir viðtal ársins. Hún er með BA-próf í stjórnmálafræði, diplómu í blaða- og fréttamennsku og meistaragráðu í menningar- og fagurfræðum.

Erla segir mikinn heiður að taka við góðu starfi Þóris.

„Það er mikill heiður að taka við góðu starfi Þóris og leiða þann öfluga hóp sem starfar á fréttastofunni næstu skref. Á fréttastofunni ríkir einstök samheldni, vinnugleði og kraftur. Það er starfsandi sem býður upp á endalaus tækifæri og ég hlakka til að grípa þau.“

Kolbeinn Tumi við störf – Mynd/Aðsend

Kolbeinn Tumi hefur verið fréttastjóri Vísis síðan 2014 og á að baki tilnefningu til blaðamannaverðlaunanna fyrir rannsóknarblaðamennsku. Hann er með meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku og auk þess með meistaragráðu í burðarþolsfræði.

Hann segist hlakka til áframhaldandi samstarfs við Erlu Björg.

„Það hefur verið heiður að starfa með Þóri og ég hlakka til áframhaldandi samstarfs okkar Erlu. Á fréttastofunni vinnur harðduglegt, hugmyndaríkt og skemmtilegt fagfólk með það að markmiði hvern einasta dag að flytja fólkinu í landinu traustar fréttir. Á því verður engin breyting.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Mótmælir lokun áfengisnetsölu – „Lögreglan hefur beitt okkur óhóflegu valdi“

Mótmælir lokun áfengisnetsölu – „Lögreglan hefur beitt okkur óhóflegu valdi“
Fréttir
Í gær

Tilkynnti Hákoni óvænt að hann þyrfti að segja upp störfum – „Honum var refsað fyrir að taka of stór skref“

Tilkynnti Hákoni óvænt að hann þyrfti að segja upp störfum – „Honum var refsað fyrir að taka of stór skref“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steingrímur rifjar upp örlagaríka för á hamfarasvæði – „Og ekkert varð aftur eins“

Steingrímur rifjar upp örlagaríka för á hamfarasvæði – „Og ekkert varð aftur eins“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þyrla kölluð til vegna áreksturs í Öræfum – Tveir með áverka

Þyrla kölluð til vegna áreksturs í Öræfum – Tveir með áverka
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björguðu þaki á hlöðu á bæ rétt suður af Hvolsvelli

Björguðu þaki á hlöðu á bæ rétt suður af Hvolsvelli
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tókst að koma bát aftur að bryggju í hvassviðrinu

Tókst að koma bát aftur að bryggju í hvassviðrinu